HHF
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Aðildarfélög
Skrifstofa
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Mót
Verkefni
Stjórnsýsla
Stjórn
Nefndir
Fundargerðir
Lög og reglugerðir

frontimage3.jpg
Sparkvallamót HHF 7. desember 2010
Síðast fótboltamótið fer fram á morgun á Tálknafirði. Klukkan 17.00 byrja 10 á.o.y. flokkurinn að spila. Þar sem mætingin í þennan aldursflokk hefur verið góð þá er ætlunin að spila á grasvellinum á Tálknafirði. Þá þurfa krakkarnir ekki að bíða eins mikið heldur fer meiri tímí í að spila.

Eldri hópurinn byrjar svo kl. 18.00 (+- 10 mínútur). Grillveisla verður svo fyrir alla þátttakendur í boði HHF. Sjáumst Hress á morgun!

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstóri HHF.
ULM dagur 1 29. júlí 2010
Fyrsti keppnisdagur er hafin á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi. Körfubolta liðið er búið að spila einn leik og tapaðist hann stórt. Edda Sól Ólafsdóttir er eini fulltrúi HHF í liðinu en 3 stelpur hættu við þátttöku rétt fyrir mót. Því voru aðeins 4 stelpur í liðinu. Fyrsti leikurinn var á móti HSH og þurftum við að fá lánaðar tvær stelpur frá þeim til þess að spila.

Njarðvíkurliðið ætlar að lána okkur þrjár stelpur sem verða með okkur í öllum leikjunum sem eftir eru í mótinu. Næsti leikur er svo kl. 18.20 á móti Njarðvík.

Frjálsíþróttakeppnin hefst svo á morgun og karfan heldur áfram. Fleiri fréttir koma í kvöld.

Kv. Aron Páll Hauksson

Fréttir af starfinu 7. júlí 2010
Sæl nú,

Sparkvallamótið á Barðaströnd gekk vel í gær þrátt fyrir kulda og rok en krakkarnir létu það ekki á sig fá og var toppmæting inn á Birkimel. Alls voru það 45 krakkar sem mættu og spiluðu af lífi og sál. Mótið gekk vel fyrir sig og voru allir sáttir í móts lok. Það skemmdi ekki stemminguna að hægt var að fá heitt kakó og samloku á staðnum. Næsta og jafnframt síðasta sparkvallamótið fer fram næstkomandi þriðjudag á Tálknafirði og býður HHF krökkunum í grillveislu að lokinni keppni.

Sú hugmynd er kominn upp að halda eitt stykki mót í Meistaraflokki Karla í fótbolta. Er ætlunin að endurvekja ,,Litlu-Keppnina" og eru þjálfararnir á stöðunum fjórum að kanna áhugan hjá sínum félögum. Vonandi náum við að halda a.m.k. eitt mót í sumar. Fréttir af þessu koma inn um leið og þær berast í hús.

Mánudaginn 12. júlí kemur Einar Lars frá KSÍ og ætlar hann að stjórna knattþrautum á Vatneyrarvell í Patreksfirði. Þrautirnar eru ætlaðar 5. flokki (11-12 ára) og verður gaman að sjá hversu margir mæta og taka þátt. Nánari umsögn um heimsóknina kemur um helgina

Nóg líf er í íþróttunum þessa dagana og verður gaman að fylgjast með öllu sem er í gangi hérna í V-Barðastrandasýslu.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.

Nú er aðeins 5 dagar í fyrsta viðburð Héraðssambandsins Hrafna-Flóka sumarið 2007. 1.umferð Litlu-Keppninnar hjá meistaraflokki fer fram 18.júní á Bíldudal.porno izle
© 2003 Héraðssambandið Hrafnaflóki (HHF), Aðalstræti 5, 450 Patreksfjörður
Sími: 456-1656, Netfang: hhf@simnet.is