HHF
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Aðildarfélög
Skrifstofa
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Mót
Stjórnsýsla
Stjórn
Lög og reglugerðir

Fréttir
Unglingalandsmót - dagur 3 31. júlí 2011
Síðasti keppnisdagurinn er nú liðin og náðu krakkarnir frábærum árangri í dag eins og hina dagana.

Saga Ólafsdóttir keppti í langstökki, úrslitum í 60 m og 600 m í dag. Lengsta stökkið hennar var 3,87 m og dugði það í annað sætið og munaði aðeins einum sm á henni og þeirri sem vann. Saga komst í 12 manna úrslit í 60 m og endaði í 9. sæti á tímanum 10,31 sek. Að lokum keppti hún í 600 m og var ekki langt frá því að komast á pall því hún náði 4. sætinu með tímann 2:16,95 mín.

Alex Þór Hauksson keppti í Langstökki og 600 m í dag. Alex gekk þokkalega í langstökkinu með sitt lengsat stökk 4,08 m. Sá árangur skilaði honum í 3. sæti og var 14 sm á eftir sigurvegaranum. Eins og Saga þá náði Alex 4. sætinu í 600 m og mjög nálægt því að krækja í verðlaun. Tíminn hans var 1:57,46 mín.

Sveinn Jóhann Þórðarson keppti í 800 m í dag og náði góðum tíma 2:36,07 og endaði hann í 4. sæti.

Góður dagur hjá krökkunum og gaman að sjá hvað þau eru að standa sig vel.

Aron Páll Hauksson
Framkvæmdarstjóri HHF

dizi izle
hd film izle
video izle
Unglingalandsmót - dagur 2 30. júlí 2011
Annar keppnis dagur hófst í dag kl. 11 á Vilhjálmsvelli á Egilstöðum. Saga Ólafsdóttir var fyrst til að keppa af okkar krökkum og hennar fyrst grein var kúluvarp. Hún varpaði kúlunni 7.03 m og lenti í öðru sæti en sigurvegarinn kastaði 7,60 m. Saga hélt sem sagt áfram að ná inn á verðlaunapall á mótinu. Sveinn Jóhann...
dizi izle
hd film izle
video izle
Fréttir af unglingalandsmóti 29. júlí 2011
Í dag kepptu allir krakkarnir frá okkur í HHF í frjálsum íþróttum, en það eru Alex Þór Hauksson (12 ára), Egill Níelsson (18 ára), Saga Ólafsdóttir (11 ára), Sveinn Jóhann Þórðarson (16 ára) og Unnsteinn Smári Þórðarson (14 ára). Flottir krakkar og þau náðu flottum árangri á fyrst keppnisdegi. Hér er árangurinn...
dizi izle
hd film izle

video izle
Litla-Keppnin 28. júlí 2011
Á miðvikudagskvöldið fór fram síðasta umferð LK á Patreksfirði. Tvö lið mættu til leiks, UMFT og ÍH en ÍFB sáu sér ekki fært að mæta með lið. Því var um úrslitaleik að ræða þar sem liðin voru jöfn af stig.

Leikurinn var mjög skemmtilegur á að horfa og var mikið um mörk og færi. Aðstæður voru fínar og mikil stemming. Leikurinn byrjaði fjörlega en eftir aðeins eina mínútu vour Tálknfirðingar búnir að skora fyrsta markið og setti það heimamenn aðeins út af laginu. Ekki löngu seinna komust UMFT í 0-2. Við það lifnaði yfir ÍH-mönnum og þeir náðu upp góðu spili á köflum og náðu að minnka muninn í 1-2 fyrir hálfleik.
dizi izle
hd film izlevideo izle
Litla-Keppnin 25. júlí 2011
Þriðja og síðasta umferð Héraðsmóts karla í knattspyrnu fer fram á Vatneyrarvelli á Patreksfirði næstkomandi miðvikudagskvöld. Fyrsti leikur hefst kl. 20. ÍH og UMFT eru jöfn með 7 stig og ÍFB reka lestina með 4 stig.
Sigurvegarinn fær afhentan nýja bikarinn sem er verið að spila um, en hann er gefina af fyrirtækinu Slaghamar ehf. í tilefni af 10 ára starfsári fyrirtækins.

HHF vil hvetja sem flesta til þess að mæta niður á völl og hvetja sitt liðin áfram.

Aron Páll Hauksson
Framkvæmdarstjóri HHF
dizi izle
hd film izlevideo izle
Sparisjóðsmótið á bolungarvík 22. júlí 2011
Nú um helgina fer vaskur hópur af krökkum og foreldrum frá Herði á Sparisjóðsmót Ungmennafélags Bolungarvíkur. Þetta er mjög skemmtilegt mót, á laugardaginn er spilaður hefðbundin fótbolti en á sunnudaginn er farið í mýrarbolta á Ísafirði. Hörður sendir eitt lið til leiks í 6.flokki.

Aron Páll Hauksson
Framkvæmdarstjóri HHF

dizi izle
hd film izle

video izle
Héraðsmót Hrafna-Flóka í frjálsum íþróttum 21. júlí 2011
Héraðsmót Hrafna-Flóka
Um síðustu helgi var Héraðsmótið okkar í frálsum íþróttum haldið á Völuvelli á Bíldudal. Undanrásir í spretthlaupum á föstudag, tæknigreinar og önnur hlaup á laugardag og sunnudag. Um er að ræða stiga keppni á milli félagana á svæðinu þ.e. Íþróttafélag Bílddælinga (ÍFB), Ungmennafélag Barðstrendinga (UMFB), Ungmennafélag Tálknafjarðar (UMFT) Hızlı vize vize işlemleri og Íþróttafélagsins Harðar (ÍH). Fjögur efstu sætin í hverri greina gefa stig og í lokinn er það stigahæsta félagið sem hlýtur Vize Başvurusu
VizeTr bikarinn góða.
dizi izle
hd film izle
video izle
Litla-keppnin 2.umferð 21. júlí 2011
Önnur umferð LK fór fram í kvöld á Bíldudal. ÍFB, UMFT og ÍH mættu með lið eins og síðast. Fyrsti leikurinn var á milli ÍFB og ÍH, ÍH voru strax á gengir við mark Bílddælinga og skoruðu snemma fyrst mark leiksins. Í seinni hálfleik voru það ÍH menn sem tóku öll völd og unnu að lokum sanngjarnan sigur 1-3.

Annar leikur var ÍH - UMFT. Jafnræði var með liðunum í byrjun leiks og ekki mikið um færi, Patreksfirðingar skoruðu þó fyrst mark leiksins um miðbik fyrri hálleiks. Í seinni hálfleik náðu Tálknfirðingar upp smá barráttu og uppskáru mark fljótlega í seinni hálfleik. Eftir það tóku ÍH-menn öll völd á vellinum og settu 2 mörk eftir það og unnu 3 - 1.

Síðasti leikurinn var á milli ÍFB og UMFT. Tálknfirðingar voru sprækir í byrjun leiks og skoruðu gott mark snemma leiks. Eftir það voru Bílddælingar heldur meira með boltan en náðu ekki að nýta þau færi sem þeir fengu. Í seinni hálf leik var sama upp á teningnum, ÍFB með boltan en náði ekki að skora en UMFT nýtti sín færi og skorðu annað mark. Lokatölur því 0 - 2.

Staðan er því þannig eftir tvær umferðir

ÍH 7:3 7 stig
UMFT 3:5 7 stig
ÍFB 3:8 4 stig

Næsta og síðasta umferðin verður miðvikudaginn 27. júlí á Patreksfirði.

Aron Páll Hauksson
Framkvæmdarstjóri HHF.
dizi izle
hd film izlevideo izle
Héraðsmót HHF 2011 16. júlí 2011
Héraðsmótið hófst í dag (fös. 15. júlí) á undanrásum í spretthlaupi. Keppni hófst kl. 18 og stóð til 20. Þrátt fyrir smá kulda létu keppendur það ekki hafa áhrif á sig og stóðu sig með prýði.

Mætingin á mótið (af skráðum keppendum) var sæmileg en hefði getað verið betri þó nokkuð var um að sameina þurfti riðla og í nokkrum tilfellum var um úrslita hlaup að ræða.

Eitt Héraðsmet féll í dag, Bryndís Hanna Hreinsdóttir ÍFB hljóp 100 m á 13.46 sek. og sló þar með gamla metið hennar Fríðu Hrund Kristinsdóttur 13,74 sek. Glæsilegur árangur hjá henni Bryndísi.

Á morgun hefst svo keppni kl. 10.15.

Sjáumst hress og kát

Aron Páll Hauksson,
Framkvæmdarstjóri HHF.

dizi izle
hd film izlevideo izle
Sparkvallamót á Tálknafirði 13. júlí 2011
Síðasta sparkvallamótið fer fram á Tálknafirði í dag og hefst kl. 17. Eins og á síðustu mótum er það 10 á.o.y. sem hefja leik og svo koma hinir flokkarnir á eftir.

HHF ætlar að bjóða þátttakendum upp á grillaðar pylsur og svala á mótinu.

Sjáumst hress í dag :)

Kær kveðja,
Aron Páll Hauksson,
Framkvæmdarstjóri.

dizi izle
hd film izle

video izle
Um unglingamót HHF 11. júlí 2011
Laugardaginn 2. júlí fór Unglingamót Hrafna-Flóka fram á Völuvelli á Bíldudal í blíðskapar veðri. Mótið hófst kl. 10 og voru keppendur mættir tímanlega til þess að hita sig upp fyrir komandi átök. Alls tóku 57 keppendur þátt í mótinu, 32 stelpur og 25 strákar. Langfjölmennasti flokkurinn var 10 ára og yngri en þar voru tæplega helmingur keppanda. Góð stemming var á mótinu og skemmtu allir sér vel.

Árangurinn á mótinu var mjög góður þó svo að engin met hafi fallið. Besta árangrinum hjá strákunum náði Kristján Kári Ágústsson þegar hann kastaði spjótinu 18,78 m og fær fyrir það 915 stig. Edda Sól Ólafsdóttir náði best árangrinum hjá stelpunum þegar hún stökk 1,35 m í hástökk og fær fyrir það 868 stig. Þess má einnig geta að Kári náði fínum árangri í hástökki þar sem hann komst yfir 1,20 og það gefur honum 855 stig og hefði þessi árangur skilað honum í 2.sæti á MÍ 11-14 ára. Aníta Arnbjörg Haraldsdóttir náði góðum árangri í hástökki þegar hún komst yfir 1,25 m í flokki 11-12 ára og fær 852 stig. Á MÍ 11-14 ára var sigurstökkið hjá 12 ára stelpum í hástökki 1,35 þannig að Aníta er ekki svo langt frá þeim bestu í hennar árgangi.

Þetta voru helstu afrek mótsins og nú er markmiðið að gera betur á Héraðsmótinu sem verður 15-17. Júlí næstkomandi.
VizeTr
Otel Rezervasyon Vize işlemleri
Kær kveðja,
Aron Páll Hauksson
Framkvæmdarstjóri HHF.
dizi izlevideo izle
Litla-Keppnin 9. júlí 2011
Önnur umferðin fer fram á Tálknafirði miðvikudaginn 13. júlí og hefst fyrsti leikur kl. 20. Úrslitin og staðan eftir fyrstu umferðina fylgja hér með.

UMFT – ÍH 0 – 0
ÍH – ÍFB 1 – 2
ÍFB – UMFT 0 – 2

Lið /Markatala/Stig
UMFT 2 : 0 4
ÍFB 2 : 3 3
ÍH 1 : 2 1

Áhorfendur er hvattir til að mæta og hvetja sitt lið áfram í skemmtilegri keppni.

Kær kveðja
Aron Páll Hauksson
Framkvæmdastjóri HHF

dizi izlevideo izle
Sparkvallamót nr. 3 - Barðaströnd 5. júlí 2011
Sparkvallamót HHF

Sparkvallamót í knattspyrnu verður haldið á Barðaströnd miðvikudaginn 6. júlí.

10 ára og yngri hefja leik stundvíslega kl. 17, 11-13 ára um 17:30 og svo 14-16 ára strax á eftir þeim.

Hvetjum alla til að mæta að horfa á og hvetja frábæru krakkana okkar áfram.

Kær kveðja
Aron Páll Hauksson
Framkvæmdastjóri HHF
dizi izlevideo izle
Litla Keppnin Nr.1 - Bíldudalur 29. júní 2011
Héraðsmót HHF í fótbolta, eða Litla Keppnin, mun hefjast að nýju miðvikudaginn 29.júní 2011 og fer fyrsta umferðin fram á Bíldudal.

Búist er við liðum frá ÍH, UMFT, UMFB og ÍFB. Spilaðar verða 2-3 umferðir og stigahæsta liðið eftir allar umferðirnar mun bera sigur úr býtum og fá að launum bikar.

Við hvetjum alla til að fjölmenna á Bíldudal í kvöld, mótið hefst kl. 20, og er búist við hörku keppni!

Með kveðju,
Lilja Sigurðardóttir, formaður HHF

dizi izlevideo izle
Fjölskyldan á fjallið 23. júní 2011
Þann 17.júní s.l. var gengið uppá Tungufell í Tálknafirði með póstkassann frá UMFÍ. Þátttakan var nokkuð góð eða um 30 manns, yngsti göngumaðurinn var 2 ára og elsti 67 ára. Gangan gekk vel en þegar á toppinn var komið var hávaða rok. Hafist var handa við að koma póstkassanum fyrir og hjálpuðust ungir sem aldnir við að koma honum fyrir.

Við mælum við með að allir fari þessa göngu enda ekki mjög krefjandi, semsagt fyrir ALLA.

Kveðja
UMFT

dizi izle
Sparkvallamót nr. 2 - Bíldudalur 20. júní 2011
Sparkvallamót HHF

Sparkvallamót í knattspyrnu verður haldið á Bíldudal þriðjudaginn 21. júní. Völlurinn stendur við grunnskólann.

10 ára og yngri hefja leik stundvíslega kl. 17. Þegar sá flokkur er búinn (kl. 18) er það 11-13 ára og í lokinn 14-16 ára.

Allir velkomnir að horfa á frábæru krakkana okkar.

Kær kveðja
Aron Páll Hauksson
Framkvæmdastjóri HHF
dizi izle

video izle
Sparkvallamót nr. 1 - Patró 16. júní 2011
Fyrsta sparkvallamót HHF var haldið á Patreksfirði 14. Júní og gekk mótið vel.
VizeTr
Otel Rezervasyon Vize işlemleri
Krakkarnir í 10 ára og yngri flokknum hófu leik og var þátttakan góð, eða um 26 krakkar. Skipt var í fjögur lið þar sem allir spiluðu við alla og skemmtu börnin sér mjög vel. Þó nokkur fjöldi áhorfenda var mættur til þess að sjá tilþrifin og voru þeir ekki fyrir vonbrigðum. Leikirnir voru nokkuð jafnir og gaman var að sjá hversu mikið keppnisskap var í þátttakendum.

Í flokki 11-13 ára voru keppendur ekki eins margir og hjá þeim yngstu en samt sem áður náðist í fjögur lið. Allir skemmtu sé mjög vel og var stemningin mjög góð.

Í elsta flokknum 14-16 ára voru aðeins fimm þátttakendur, allir frá Patró. Allt voru þetta stelpur og fengu þær að vera saman í liði gegn blönduðu stráka liði.

Í heildina var mótið gott og gekk það eins og í sögu. Nú næsta mótið fer svo fram á sparkvellinum á Bíldudal 21. Júní næstkomandi.

Aron Páll Hauksson, framkvæmdastjóri HHF
dizi izle

video izle
Sparkvallamót HHF 7. desember 2010
Síðast fótboltamótið fer fram á morgun á Tálknafirði. Klukkan 17.00 byrja 10 á.o.y. flokkurinn að spila. Þar sem mætingin í þennan aldursflokk hefur verið góð þá er ætlunin að spila á grasvellinum á Tálknafirði. Þá þurfa krakkarnir ekki að bíða eins mikið heldur fer meiri tímí í að spila.

Eldri hópurinn byrjar svo kl. 18.00 (+- 10 mínútur). Grillveisla verður svo fyrir alla þátttakendur í boði HHF. Sjáumst Hress á morgun!

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstóri HHF.

dizi izlevideo izle
ULM dagur 1 29. júlí 2010
Fyrsti keppnisdagur er hafin á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi. Körfubolta liðið er búið að spila einn leik og tapaðist hann stórt. Edda Sól Ólafsdóttir er eini fulltrúi HHF í liðinu en 3 stelpur hættu við þátttöku rétt fyrir mót. Því voru aðeins 4 stelpur í liðinu. Fyrsti leikurinn var á móti HSH og þurftum við að fá lánaðar tvær stelpur frá þeim til þess að spila.

Njarðvíkurliðið ætlar að lána okkur þrjár stelpur sem verða með okkur í öllum leikjunum sem eftir eru í mótinu. Næsti leikur er svo kl. 18.20 á móti Njarðvík.

Frjálsíþróttakeppnin hefst svo á morgun og karfan heldur áfram. Fleiri fréttir koma í kvöld.

Kv. Aron Páll Hauksson
dizi izle
ULM dagur 1 29. júlí 2010
Fyrsti keppnisdagur er hafin á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi. Körfubolta liðið er búið að spila einn leik og tapaðist hann stórt. Edda Sól Ólafsdóttir er eini fulltrúi HHF í liðinu en 3 stelpur hættu við þátttöku rétt fyrir mót. Því voru aðeins 4 stelpur í liðinu. Fyrsti leikurinn var á móti HSH og þurftum við að fá lánaðar tvær stelpur frá þeim til þess að spila.

Njarðvíkurliðið ætlar að lána okkur þrjár stelpur sem verða með okkur í öllum leikjunum sem eftir eru í mótinu. Næsti leikur er svo kl. 18.20 á móti Njarðvík.

Frjálsíþróttakeppnin hefst svo á morgun og karfan heldur áfram. Fleiri fréttir koma í kvöld.

Kv. Aron Páll Hauksson

dizi izle

video izle
Fréttir af starfinu 7. júlí 2010
Sæl nú,

Sparkvallamótið á Barðaströnd gekk vel í gær þrátt fyrir kulda og rok en krakkarnir létu það ekki á sig fá og var toppmæting inn á Birkimel. Alls voru það 45 krakkar sem mættu og spiluðu af lífi og sál. Mótið gekk vel fyrir sig og voru allir sáttir í móts lok. Það skemmdi ekki stemminguna að hægt var að fá heitt kakó og samloku á staðnum. Næsta og jafnframt síðasta sparkvallamótið fer fram næstkomandi þriðjudag á Tálknafirði og býður HHF krökkunum í grillveislu að lokinni keppni.

Sú hugmynd er kominn upp að halda eitt stykki mót í Meistaraflokki Karla í fótbolta. Er ætlunin að endurvekja ,,Litlu-Keppnina" og eru þjálfararnir á stöðunum fjórum að kanna áhugan hjá sínum félögum. Vonandi náum við að halda a.m.k. eitt mót í sumar. Fréttir af þessu koma inn um leið og þær berast í hús.

Mánudaginn 12. júlí kemur Einar Lars frá KSÍ og ætlar hann að stjórna knattþrautum á Vatneyrarvell í Patreksfirði. Þrautirnar eru ætlaðar 5. flokki (11-12 ára) og verður gaman að sjá hversu margir mæta og taka þátt. Nánari umsögn um heimsóknina kemur um helgina

Nóg líf er í íþróttunum þessa dagana og verður gaman að fylgjast með öllu sem er í gangi hérna í V-Barðastrandasýslu.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.video izle
Unglingamót Hrafnaflóka 30. júní 2010
Laugardaginn 3. júlí verður fyrsta frjálsíþróttamót sumarsins haldið á Völuvelli á Bíldudal. Unglingamótið er fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára og keppt í öllum helstu greinum frjálsra íþrótta. Ekki er um stigakeppni milli félaganna að ræða heldur einstaklingskeppni þar sem veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverri grein. Í boðhlaupunum verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti.

Mótið hefst stundvíslega kl. 10 á laugardagsmorgun, keppendur eru skráðir á staðnum og hefst skráning ca. 15 mínútum fyrir áætlaðan keppnistíma.

HHF vil benda fólki á að klæða sig eftir veðri og ekki sakar að hafa teppi meðferðis. Vonandi verður fólk duglegt við að mæta og gera mótið skemmtilegra fyrir vikið. Frekari upplýsingar um mótið er hægt að nálgast í síma 868-7961 eða með tölvupósti á pozi_5@hotmail.com.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.
video izle
Sparkvallamót á Bíldudal 29. júní 2010
Annað sparkvallamótið í fótbolta var haldið í góðu veðri á Bíldudal 24. júní. Vel var mætt í yngsta aldurshópinum eða alls 27 krakkar frá stöðunum. Leikirnir voru þrusu skemmtilegir á að horfa og var mikil stemming í áhorfendunum sem hvöttu liðin áfram.

Þó nokkur fjölgun var í eldri hópnum en það mættu 22 krakkar og því var skipt í 4 lið. Krakkarnir skemmtu sér vel og spiluðu af ánægju.

Gaman var að sjá að fleiri mættu heldur en síðast og var mikil stemming hjá foreldrum á pöllunum eða í brekkunni á Bíldudal. Nú er bara að gera enn þá betur þegar næsta mót verður haldið en það fer fram á Barðaströnd 13. júlí.

fleiri fréttir af starfinu koma inn á morgun.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.
video izle
Sparkvallamót 2 23. júní 2010
Nú er komið að öðru sparkvallamóti HHF og verður það haldið á Bíldudal. Dagskráin er alveg eins og á síðasta móti. Yngstu krakkarnir hefja leik klukkan 17.00 og eldri hópurinn kl. 18.00. Það væri gott ef krakkarnir væru mættir ca. 15 mín fyrr til þess að hita sig upp og gera sig klára fyrir leikina.

Þjálfararnir sjá svo um að skipta í lið og þjálfarinn á Bíldudal, Kristján Reynald, sér um að dæma leikina.

Síðasta mót gekk vel fyrir sig en það vantaði fleiri krakka. Nú er um að gera að drífa sig á Bíldudal á morgun og hvetja krakkan áfram í skemmtilegum leik.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.

video izle
Sparkvallamót HHF 19. júní 2010
Fyrsta sparkvallamót sumarsins var haldið á Patreksfirði í gær. Fyrir þá sem ekki vita eru það fótboltamótin sem HHF heldur á sumrin. Ágætis mæting var í yngsta aldurshópinn og voru alls 23 krakkar sem mættu. Þjálfararnir skiptu þeim niður lið og svo var spiluð heil umferð allir-spila-við-alla. Leikirnir voru fjörugir og hin mesta skemmtun. Krakkarnir sýndu góð tilþrif jafnt í sókn sem vörn og skemmtu sér vel.

Eldri hópurinn hóf leik kl. 18. Heldur færri voru í þessu flokki en aðeins fjórtán krakkar voru mættir til þess að spila. Skipt var í 3 lið sem spilu svo. Mikil barrátta var í þessum flokki og voru krakkarnir ekkert að gefa neitt eftir. Leikirnir voru spennandi og voru krakkarnir að spila skemmtilegan fótbolta. Eftir að heil umferð var búin var spilaður einn lokaleikur UMFT – ÍFB/ÍH það var hörkuleikur sem endði að lokum 1-1.

Í heildina gekk mótið vel fyrir sig og voru krakkarnir að standa sig vel, þau spiluð af ánægju og prúðmennsku. Nú er bara að vona að fleiri sjái sér fært að mæta á næsta sparkvallamót sem fer fram á Bíldudal 24. júní.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstóri HHF.

video izle
Sparkvallamót á Patreksfirði 17. júní 2010
Á morgun verður fyrsta sparkvallamót HHF í knattspyrnu. Yngstu krakkarnir, 11-6 ára, hefja leik kl. 17:00. Eldri hópurinn, 12-16 ára, byrjar kl. 18:00.

Þjálfararnir hjálpast að við að skipta í lið og svo sér þjálfarinn á Patreksfirði (Aron Páll Hauksson) um að dæma leikina.

Vonandi sjá sér flestir fært að mæta og taka þátt. Fólk er hvatt til þess að koma og hvetja krakkana áfram í skemmtilegum leik.

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.

video izle
7. maí 2010
Sparkvallamót í Birkimel á Barðaströnd 7. maí 2010
Þriðja sparkvallamótið fer fram á morgun í Birkimel á Barðaströnd. Klukkan 17.00 hefja yngri krakkarnir leik, 10 á.o.y. og svo klukkan ca. 18 byrja eldri krakkarnir, 11-16 ára.

Umfb ætlar að selja heitar samlokur á staðnum á morgun og því óþarfi að taka nesti.

Þetta er næst síðasta sparkvallamótið hjá krökkunum okkar og því um að gera að fjölmenna á það.

Áfram íþróttir og HHF!

Aron Páll Hauksson, Framkvæmdarstjóri HHF.

video izle
Fyrsta sparkvallamótið gekk vel 18. júní 2008

Fyrsta knattspyrnumótið gekk vel fyrir sig en það var haldið í Tálknafirði. Keppt var í 10 ára og yngri og svo 11 - 16 ára. Allir voru sammála um að mótið hafi gengið vel fyrir sig en ákveðið hefur verið að breyta aðeins fyrir næsta mót og fjölga flokkum, þ.e.a.s. 10 ára og yngri, 11-13 ára og 14 og eldri. Næsta mót verður svo haldið á Barðastönd við Birkimelskóla og er það von HHF að ekki færri mæti á það mót.

video izle
Unglingamót HHF 18. júní 2008
Unglingamót HHF verður haldið á laugadaginn nk. og verður mótið haldið á Bíldudal, Völuvelli, eins og vanalega. Mótið hefst stundvíslega kl. 10:00. Keppt verður í hlaupum, stökkum og köstum. Foreldrar sem og aðrir eru hvattir til að mæta og hvetja krakkana áfram en krakkar á aldrinum 16 ára og yngri keppa á þessu móti.

video izle
Fyrsta sparkvallamótið í dag 12. júní 2008
Í dag verður fyrsta sparkvallamótið og verður það haldið í Tálknafirði. Mótið hefst kl 17:00 en þá hefja krakkar á aldrinum 10 ára og yngri leik. kl. 18:00 munu svo eldri krakkarnir leik. Gaman verður að sjá hvort að þetta nýja fyrirkomulag muni ganga upp eða hvað.
Vonast til að sjá sem flesta á mótinu.

video izle
Héraðsþingið búið 23. maí 2008
Héraðsþingið var haldið í Tálknafirði og gekk vel fyrir sig. Einar Jón úr stjórn UMFÍ kom sem gestur á þingið og hélt tölu. Mótaskrá HHF var samþykkt fyrir sumarið og hægt að finna hérna til hliðar (dagsetningarnar ekki réttar, en skrifaðar með hverju móti). vize işlemleri
hızlı vize
Vize Başvurusuvideo izle
Aðalfundur UMFB 13. mars 2008
Aðalfundur UMFB verður haldinn á morgun, föstudaginn 14 mars í Birkimel á Barðaströnd. Venjuleg aðalfundarstörf en fundurinn mun hefjast kl:20:00 og allir eru hvattir til að mæta.

video izle
Uppskeruhátíð UMFT 28. febrúar 2008
Laugadaginn s.l. þá var haldin uppskeruhátíð hjá UMFT og var mér boðið og vill ég nota tækifærið og þakka gott boð. Uppskeruhátíðin hjá þeim er árviss viðburður og er ætíð haldin í byrjun hvers árs. Þarna voru veitt verðlaun fyrir bestu frammistöðu í karla og kvennaflokki í fótbolta og frjálsum. Svo voru veitt verðlaun fyrir besta blakmanninn, sundbikarinn, Jóns bikarinn og svo auðvitað íþróttamann UMFT.

video izle
Aðalfundur GBB 23. febrúar 2008
Fimmtudaginn síðastliðinn þá var haldinn aðalfundur GBB og var hann haldinn á kaffistofu frystihúsins á bíldudal. Vel var mætt á fundinn og gekk hann vel fyrir sig. Engin stór mál voru fyrir fundinum en nokkrar ákvarðanir voru þó tekknar.


video izle
Starfið að hefast á ný á árinu 16. febrúar 2008
Starf HHF hefur verið nánast í dvala eins og undanfarin ár en vetrarmánuðirnir hjá félaginu eru rólegir. Núna er þegar farið að undirbúa sumarstarfið og verður það með glæsilegra móti. Hér að neðan eru nokkrir hlutir sem að verið er að vinna í og ættu að vera á komandi sumri
Héraðsþing HHF 5. febrúar 2008
Héraðsþing HHF verður haldið þriðjudaginn 6. maí kl 18:00 á Hópinu Tálknafirði. Allir eru velkomnir á þingið.

Meðal þess sem ákveðið verður er mótaskráin fyrir sumarið en drög af henni hafa verið send formönnum félaga.
Stjórn HHF vonast til að sjá sem flesta.

video izle
Stórmót í blaki á næsta ári 23. október 2007
Öldungamót Blakfélags Íslands verður haldið á Ísafirði dagana 1.-3. maí á næsta ári en um er að ræða eitt stærsta íþróttamót sem haldið hefur verið á svæðinu. „Undirbúningur hófst strax í vor, en að sjálfsögðu verður mest að gera síðustu mánuði fyrir mót. Við búumst við 600-800 keppendum og við vitum að þegar hafa mörg lið útvegað sér gistingu“, segir Harpa Grímsdóttir, þjálfari Skellanna sem hefur umsjón með mótinu. Hún segir að veturinn leggist annars vel í Skellurnar. „Við byrjuðum með æfingar í krakkablaki í haust á Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri og það gengur mjög vel. T.d. á Þingeyri er stór hluti barnanna í 1.-7. bekk að æfa blak.“
Unglingalandsmót á Höfn í Hornafirði 9. ágúst 2007
Unglingalandsmótið fór fram um síðast liðna helgi á Höfn. Talið er að um 7000 manns hafi verið saman komnir á Höfn og var þetta næst stærsta hátíðin um verslunarmanna helgina í ár. Eins og venjulega var það í frjáls íþróttakeppninni sem við áttum flesta okkar keppendur. Eitt héraðsmet var slegið á mótinu en það var hún Hafdís Ósk Valgeirsdóttir sem slóg metið í 100m hlaupi frá árinu 1989. Gamla metið var 13,6 sek. en hún gerði sér lítið fyrir og hljóp á tímanum 13,28 sek. Þessi tími skilaði henni í 5.sætið í keppninni. Glæsilegt hjá henni og óskum við Hafdísi til hamingju með afrekið. Einn keppandi komst á pall en það var bróðir Hafdísar hann Aron Bjarni sem lenti í 3.sæti í kúluvarpi í flokki 17-18 ára drengja. Aron varpaði kúlunni 10,70 m og skilaði það honum í 3.sætið. Eyrún Lind Árnadóttir hafnaði í 4.sæti í spjótkasti 12 ára stelpna með kasti upp á 21,62 m og bætti hún sinn besta árangur töluvert. Egil Níelsson kastaði spjótinu 34,06 m og lenti í 5.sæti í flokki 14 ára pilta. Jón Gunnar Ingólfsson stökk 1,30 m í hástökki 12 ára stráka og varð í 7.sæti.

HHF átti tvo keppendur í sundi það voru þær Sigþrúður Sveinsdóttir og Sandra Lind Bjarnadóttir. Sandra hafnaði í 7.sæti í 50m flugsundi á tímanum 40,97 sek. Sigþrúður lenti í 10.sæti í 50m skriðsundi á tímanum 39,26 sek.

Til þess að skoða öll úrslit frá unglingalandsmótinu þá er hægt að nálgast þau á www.ulm.is undir tenglinum úrslit, og þar mótaforrit FRÍ.

Í heildina gekk okkar krökkum þokkalega í keppninni og náðu nokkrir að bæta sinn besta árangur. Krakkarnir höfðu mjög gaman af því að fara og keppa á þessu móti enda skemmtilegt þegar að aðstaðan er eins góð og hún var á Höfn. Þess á milli var nóg um að vera fyrir krakkana og gátu allri fundið eitthvað við sitt hæfi. Næsta unglingalandsmót er svo í Þorlákshöfn og þá er ætlunin að fara með stærri hóp af krökkum og ná meiri stemmingu innan sambandsins okkar
video izle
Kvöldmót- úrslit 24. júlí 2007
Þriðja og síðasta kvöldmót sumarsins í fjálsum íþróttum var haldið í gærkvöldi. Keppt var í 60m/100m og 600m/800m hjá krökkunum. Út frá árangri sínum fá krakkarnir ákveðin stig sem fengin eru frá afrekstöflum FRÍ. Úrslitin urðu á þessa vegu.Vize Başvurusu
VizeTr
Otel Rezervasyon
Héraðsmót HHF 2007 22. júlí 2007
Helgina 13-15. júlí fór héraðsmótið í frjálsum íþróttum fram á Völuvelli á Bíldudal. Blíðskapar veður var alla helgina og skilyrðin til keppninnar góð. Tæplega 190 keppendur voru skráðir til leiks frá félögunum fjórum.
Hitt og Þetta 6. júlí 2007
1.júlí síðastliðin var unglingamót HHF haldið á Bíldudal í rjómablíðu. Mótið gekk vel fyrir sig og var búið á undan áætlun. Aðalástæðin fyrir því var sú staðreynd að stór hluti þeirra krakka sem voru skráðir til keppni mættu ekki, en við því má samt alltaf búast. Engin Hérasmet féllu á mótinu en ágætur árangur engu að síður og voru flestir ánægðir með mótið.

Á Mánudaginn (9.júlí) er svo 2.umferð yngri flokkanna í Knattspyrnu og fer umferðin fram á Vatneyrarvelli á Patreksfirði. Mikil keppni er í 3.flokki þar sem að öll félögin ná að tefla fram liði í þeim aldursflokki. Mótið hefst kl 18.00

Á þriðjudaginn verður svo 2.kvöldmót sumarsins haldið á Bíldudal en þar verður keppt í langstökki og hástökki. Keppni hefst kl 20.00 og keppendur eru skráðir á staðnum.

Helgina 13-15.júlí er Héraðsmótið hjá okkur í frjálsum íþróttum. Keppni hefst á föstudag á undanrásum í spretthlaupum. Byrjað verður að hlaupa kl 18.00. Mótið heldur svo áfram á laugardag og sunnudag. Tímaseðill fyrir mótið kemur inn á síðuna á fimmtudagskvöld.

Nóg er sem sagt um að vera og vonandi ætlar fólk að vera duglegt að mæta á viðburðina til þess að hvetja og horfa á.
Knattspyrna 27. júní 2007
Á fimmtudaginn kl 20 er áætlað að smala saman öllum þeim sem hafa áhuga að koma á Patreksfjörð og spila fótbolta. Takmarkið er að ná að spila á stóran völl en ef það klikkar þá verður skipt í lið og spilað á lítinn völl. Þeir sem hafa áhuga mæta niður á völl upp úr hálf átta svo hægt sé að byrja fljótlega. Reynum að rífa þetta upp með því að mæta og ná að spila skemmtilegan leik.

kv. HHF
Knattspyrnumót 20. júní 2007
1.umferð yngri flokkanna fór fram á Bíldudal í kvöld. Það voru 3 lið í 3.flokki (15-16 ára) og að auki var UMFT með einn 4.flokk og ÍFB með einn 5.flokk. Allir voru mættir tímanlega og náði mótið að hefjast kl. 18. Í seinasta leik mótsins gerðist það leiðindar atvik að Gunnbjörn Ólafsson í 3.fl. UMFT fótbrotnði. HHF vill senda honum barráttu/góðs bata kveðjur og vonandi verður hann kominn á ról sem fyrst. Úrslitin á mótinu urðu á þessa vegu,

4.fl UMFT - 5.fl ÍFB 13 - 0

3.flokkur
ÍH - ÍFB 7 - 2
UMFT - ÍH 0 - 1
ÍFB - UMFT 0 - 3
Knattspyrnumót og Kvöldmót 19. júní 2007
Næstu daga fara fram 2 mót á vegum HHF, á morgun fer fram 1.umferð yngri flokkana í knattspyrnu á Bíldudal og hefst mótið kl 18 á Völuvelli. Svo dagin eftir eða 21.júní er það kvöldmót HHF í frjálsum íþróttum og þar verður keppt í kúluvarpi og spjótkasti/boltakasti fyrir krakka á aldrinum 10-16 ára. Kvöldmótið fer fram á Völuvelli á Bíldudal og hefst kl 20.

Mikilvægt er að keppendur, starfsmenn og þjálfarar séu mættir tímanlega og væri frábært ef allir gætu verið komnir á staðinn 30 mínútum fyrir keppni þannig að mótið geti hafist tímanlega.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hringja í 868-7961.
14.júní- Knattspyrna meistaraflokkur 14. júní 2007
Samkvæmt mótaskrá HHF var fyrirhugað að halda 1.umferð Litlu-Keppninnar á Bíldudal mánudagin 18.júní. Eftir að HHF var búið að setja sig í samband við tengiliða félagana þá hefur verið ákveðið að fresta þessu móti og að öllum líkindum verður Litla-Keppnin ekki haldin þetta ár sökum skorts á leikmönnum á stöðunum sem og almenns áhugaleysis á þátttöku.
Frjálsíþróttaþjálfarar UMFB 14. júní 2007
Búið er að ganga frá ráðningu hjá UMFB varðandi frjálsíþróttaþjálfara fyrir sumarið og hafa Davíð Valgeirsson, Aron Vageirsson og Sædís Eiríkisdóttir tekið það að sér. Stjórn HHF óskar þeim alls hins besta í starfinu í sumar og vonast til að eiga gott samstarf við þau sem og aðra þjálfara.
14.júní- UMFÍ fundur 13. júní 2007
Í dag var haldin fundur á veitingastaðnum Þorpinu á Patreksfirði og voru fulltrúar UMFÍ mættir til þess að kynna sig og segja stuttlega frá starfsemi sambandsins.
13.júní- það styttist í vertíðina 12. júní 2007
Nú eru aðeins 5 dagar í fyrsta viðburð Héraðssambandsins Hrafna-Flóka sumarið 2007. 1.umferð Litlu-Keppninnar hjá meistaraflokki fer fram 18.júní á Bíldudal.
Mótaskrá HHF fyrir sumarið 2007 30. maí 2007
Hérna er mótaskráin fyrir sumarið. Hún var samþykkt með þeim fyrirvara varðandi unglingamótið. Eftir samtal við forsvarsmenn Bíldudals grænar baunir þá var niðurstaðan sú að hafa unglingamótið sunnudaginn 1 júlí. Nánari tímasetning kemur seinna. En svona lítur dagskráin út fyrir sumarið.
Sumarið að byrja 5. maí 2007
Loksins er sumarið að ganga í garð og segir það okkur að starfið hjá HHF sé að fara á fullt. Sumarið í ár verður væntanlega eins og síðustu ár og ber þar helst að nefna unglingamótið og héraðsmótið sem og auðvitað unglingalandsmótið. Aðalfundur HHF verður vonandi helgina 18-20 maí en hann verður haldinn á Bíldudal. Nánari upplýsingar um það síðar hér á síðunni.
Unglingalandsmót á Höfn í Hornafirði 8. janúar 2007
3.-5. ágúst fer ulm fram á Höfn. Keppnin stendur frá föstudegi til sunnudags. Það eru 20 keppendur sem fara fyrir hönd Hrafna-Flóka í ár, 18 keppendur í frjálsum íþróttum og 2 í sundi. Mikið verður um að vera á Höfn á meðan á mótinu stendur og mikið fyrir börn og unglinga að gera. Foreldrar/Forráðamenn eru hvattir til þess að skoða síðu mótsins, www.ulm.is, því þar eru mikilvægar upplýsingar t.d. dagskrá mótsins, úrslit móta og afþreying á mótinu. Ath!! það er mjög mikilvægt að skoða síðuna þar því allar upplýsingar um mótið koma þar strax inn. Hrafna-Flóki óskar öllum keppendum, þjálfurum, foreldrum og öðrum á mótinu góðs gengis og voandi skemmt allir sér vel.

video izle
Unglingalandsmótið á Laugum 8. september 2006
Hrafna-Flóki sendi fríðan hóp keppenda, þjálfara og stuðningsmanna á Unglingalandsmótið á Laugum. Alls fór 29 krakkar sem kepptur fyrir hönd sambandsins í frjálsum íþróttum og sundi. Vize işlemleri
Araba
Unglingalandsmótið á Laugum 27. júlí 2006
Nú stendur yfir skráning keppenda sem ætla að fara á Laugar á ULM um verslunarmannahelgina. Skráningarfrestur er 31.júlí þanning að ennþá er tími til þess að hafa samband við þjálfarann sinn og láta hann skrá sig. Mikið verður um að vera yfir helgina á Laugum og hvetur HHF fólk til þess að fjölmenna á staðinn og skemmta sér. Nánari upplýsingar um Unglingalandsmótið er hægt að nálgast á heimasíðu mótsins, www.ulm.is.
kv. Aron Páll
Knattspyrna- Litla Keppnin 22. júlí 2006
Fimmtudaginn 20.júlí fór önnur umferð Litlu-Keppninnar fram á Bíldudal. Úrslitinn urðu eftirfarandi...
Knattspyrna- Litla Keppnin 19. júlí 2006
Fimmtudaginn 20.júlí verður 2.umferð litlu-keppninnar haldin á Bíldudal og hefst mótið kl 20. eftir fyrstu um ferð er staðan þanning að ÍFB er í efsta sæti, UMFB er í öðru sæti, svo kemur ÍH og restina rekur UMFT. Reiknað er með að öll sömu liðin mæti til leiks og vonandi verður þetta skemmtileg og spennandi umferð.

kv. Aron Páll
Frjálsar íþróttir- Kvölmót 19. júlí 2006
Hérna eru stigahæstueinstaklingarinir í öllum flokkum eftir 2 kvöldmót. Ef einhver vil vita meira um hvernig staðan er er hægt að tala við þjálfarann hjá sínu félagi.
Frjálsar íþróttir- Héraðsmót HHF 18. júlí 2006
Héraðsmót HHF var haldið um seinustu helgi og gekk mótið vel fyrir sig þrátt fyrir að keppni var aflýst á laugardaginn vegna veðurs. UMFT hafði sigur úr býtum..
Frjálsar íþróttir- Héraðsmót HHF 15. júlí 2006
Héraðsmót HHF 2006 byrjaði á föstudaginn með undanrásum í spretthlaupum hjá öllum aldursflokkum. Mótið hófst kl 18.00 og var búið um hálf tíu um kvöldið. Keppni var frestað..
Frjálsar íþróttir- Kvöldmót 11. júlí 2006
Í kvöld fer fram 2.kvöldmót sumarsins á Bíldudal og hefst það kl 20.00. Í kvöld verður keppt í hástökki og langstökki, keppnin er spennandi hjá krökkunum og því verður gaman að fylgjast með því hvernig keppnin fer í kvöld. Það er líka vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta í kvöld og horfa á krakkana keppa.
kv. Aron Páll
Knattspyrna- meistaraflokkur 10. júlí 2006
í Kvöld kl 20.00 verður knattspyrnuleikur á Patreksfirði, ætlunin er að sem flestir komi frá stöðunum og svo verður skipt í lið. Þetta er skemmtun fyrir alla og um að gera að reima á sig skóna og smell´onum í "sammann". Sjáumst á vellinum

kv. Aron Páll
knattspyrna- meistaraflokkur 9. júlí 2006
Síðast fimmtudag fór 1.umf Litlu-Keppninnar fram og urðu úrslitin eftirfarandi:
Knattspyrna- meistaraflokkur 6. júlí 2006
Á Vatneyrarvelli á Patreksfirði hefst í kvöld kl 20.00 Litla-Keppnin hjá Meistaraflokk karla í knattspyrnu. Þetta er fyrsta umferð af 3 sem haldinar verða. HHF vonar að sem flestir sjái sér fært um að mæta á völlinn og styðja sína menn áfram í drengilegri keppni. Sjáumst hress, kv. Aron Páll
Frjálsar Íþróttir- Unglingamót HHF 3. júlí 2006
Á sunnudaginn var hið árlega Unglingamót HHF haldið á Völuvelli á Bíldudal. Keppnin gekk vel og voru flestir sem komu að mótinu ánægðir með það. Árngurinn á mótin var þokkalegur og stóðu allir keppendur sig vel.
Knattspyrna 30. júní 2006
Í gærkvöldi fór fram leikur á milli ÍFB/UMFB - ÍH á Bíldudal, um var að ræða æfingaleik en ekki leik í neinu móti. Enginn dómari var og sá leikmennirnir sjálfir um að dæma leikinn og gekk það furðu vel.
Knattspyrna- meistaraflokkur 28. júní 2006
Á morgun verður leikur á stórum velli á milli ÍFB og ÍH leikurinn fer fram á Völuvelli á Bíldudal og hefst leikurinn klukkan 20.00.
Fyrstu mót sumarsins 2006 28. júní 2006
Þá eru 2 mót búin í sumar, 1.umferð yngri flokkanna í knattspyrnu fór fram á Patreksfiði 16.júní. Þar mættu lið 4 lið til leiks, UMFT mætti með stelpu og stráka lið í 4.flokki og ÍH mætti með lið í 4-5.flokki. Úrslitin urðu á þessa vegu,
Unglingamót HHF 27. júní 2006
Unglingamót HHF verður haldið á Völuvelli á Bíldudal á sunnudaginn kemur (2.júlí) og hefst kl 10. Ekki er búið að setja niður tímatöflu en hún mun koma hingað inn þegar nær dregur. Allir eru hvattir til að láta sjá sig á mótinu og hvetja sína menn áfram.
Otel Rezervasyon
Fyrsta kvöldmótið er búið og er verið að vinna í því að setja inn úrslit hérna inn á síðuna. Þeim sem langar að fá að sjá úrslitin geta einnig sent á mig tölvupóst og ég sendi þá til baka úrslitin.
Með kveðju Ingþór
ingthor@tmd.is
Aðalfundur HHF 29. maí 2006
Aðalfundur HHF verður haldinn þriðjudaginn 6 júní á Barðaströnd. Fundurinn verður í Birkimel og hefst hann kl 18. UMFB mun sjá um halda fundinn og verður súpa og brauð í matarhléinu.
Dagskrá kemur síðar í vikunni.
Aðalfundur HHF 23. apríl 2006
Aðalfundur HHF verður haldinn í Birkimel á Barðaströnd miðvikudaginn 10 maí. Fundurinn hefst kl 18:00 og eru allir velkomnir á þennan fund.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Á næstunni 7. mars 2006
Fimmtudaginn 6.júlí verður fyrsta 1.umf í Litlu-Keppninni hjá meistaraflokk haldin á Patreksfirði...Romanya Vizesi
Starfssemi HHF 24. september 2005
Hvað er að gerast hjá HHF yfir vetramánuðina? Já fólk hefur verið að velta fyrir sér hvað er að gerast hjá HHF yfir vetrar mánuðina og hvort að starfssemin liggi alveg niðri eða hvað. Málið er að hingað til hefur HHF .....
Héraðsmót 16. september 2005
Ákveðið hefur verið að halda Héraðsmót í körfuknattleik sem og Blaki. Keppnirnar verða á .......
Héraðsmót 16. september 2005
Ákveðið hefur verið að halda Héraðsmót í körfuknattleik sem og Blaki. Keppnirnar verða á .......
Héraðsmót HHF yngri flokkar. 7. september 2005
2. umferð Héraðsmóts yngri flokka í knattspyrnu fór fram á Patreksfirði laugardaginn 9. júlí. Úrslit leikja voru á þessa leið:
vize işlemleri Vize Forum
6. flokkur ÍH 0 - UMFT 15
5. flokkur ÍH 8 - UMFT 1
4. flokkur ÍH 6 - UMFT 0
3. flokkur ÍH 3 - UMFT 1

Engin lið komu frá ÍFB Bíldudal að þessu sinni. Til gamans má geta að lið 4. og 3. flokks frá Tálknafirði spiluðu einn leik innbyrðis og 4. flokks liðið sem er skipað leikmönnum 13-14 ára gerði sér lítið fyrir og sigruðu 3. flokkinn sem er skipað leikmönnum 15 - 16 ára.

Daníel farinn 23. ágúst 2005
Daníel Galvez framkvæmdastjóri HHF hefur látið að störfum og þökkum við honum kærlega fyrir sumarið

Síðasti leikurinn í Stóru keppninni. 11. ágúst 2005
Laugardaginn 13. ágúst verður síðasti leikurinn í Stóru keppninni í knattspyrnu. Leikurinn er á milli ÍH og ÍFB og verður spilaður á Vatneyrarvelli Patreskfirði og hefst kl. 14:00. Eftir leikinn fær ÍH afhent verðlaun fyrir sigur í mótinu. HHF hvetur alla til að mæta á völlinn.

Úrslit í Kvöldmóti HHF 2005 9. ágúst 2005
Í gær mánudag var síðasta kvöldmót sumarsins haldið á Völuvelli Bíldudal. Keppt var í 60m/100m hlaupi og 800m hlaupi...

Síðasta kvöldmótið í frjálsum! 5. ágúst 2005
Mánudaginn 8. ágúst fer fram þriðja og síðasta kvöldmótið í frjálsum íþróttum. Mótið verður, sem fyrr, haldið á Völuvelli á Bíldudal og hefst klukkan 19:30 og keppt verður í 60m hlaupi, 100m hlaupi og 800m hlaupi.

ÍH sigrar Stóru keppnina í knattspyrnu! 4. ágúst 2005
UMFT og ÍH áttust við í Stóru keppninni í knattspyrnu á Tálknafirði í gær miðvikudag. Leikurinn var úrslitaleikur í keppninni þar sem ÍH gat tryggt sér sigur með því að leggja UMFT...

UMFT - ÍH í Stóru keppninni. 3. ágúst 2005
UMFT og ÍH mætast á Tálknafirði í Stóru keppninni miðvikudagskvöldið 3. ágúst. Leikurinn hefst kl. 20:00...

Stórgóður árangur á Unglingalandsmótinu í Vík. 2. ágúst 2005
25 keppendur HHF á Unglingalandsmótinu í Vík í Mýrdal gerðu góða ferð suður og komu heim hlaðnir verðlaunapeningum. Okkar fólk fékk verðlaun í frjálsum íþróttum, fitness og sundi...

Stóra keppnin í knattspyrnu. 27. júlí 2005
Í gær þriðjudag var leikið í Stóru keppninni í knattspyrnu þar sem ÍFB tók á móti ÍH. Fyrri hálfleikur var eign ÍH sem skoruðu 4 góð mörk. Leikmenn ÍFB komust ekki mikið áfram en áttu þó sín færi. Staðan í hálfleik 4 - 0. Leikurinn gjörbreyttist síðan í seinni hálfleik þar sem liðsmenn ÍFB náðu undirtökum í vize işlemleri Vize Forum leiknum á löngum leikköflum og settu 2 mörk. ÍH menn náðu svo aðeins að sýna klærnar og setja 1 mark undir lokin. Leiknum lauk með 5 - 2 sigri ÍH.

Unglingalandsmót UMFÍ í Vík, 26 keppendur skráðir. 27. júlí 2005
HHF sendir 26 keppendur til leiks á Unglingalandsmótinu í Vík í Mýrdal sem er því miður heldur færra heldur en undanfarin ár. Keppendur eru 7 frá ÍH, 8 frá UMFB og 11 frá UMFT. Okkar fólk ætlar að keppa í frjálsum íþróttum, sundi, skák og fitness. Áfram HHF!

Héraðsmóti HHF yngri flokka í knattsyrnu lokið. 26. júlí 2005
Héraðsmóti HHF yngri flokka er lokið. Þriðja og síðasta umferðin var leikin á Tálknafirði mánudaginn 25. júlí þar sem spilaðir voru tveir úrslitaleikir einn í 6. flokk og einn í 5. flokk...

Héraðsmót, stigahæsti einstaklingur 16 ára og yngri konur! 25. júlí 2005
Á Héraðsmóti HHF sem haldið var á dögunum hlaut Sara Mjöll Magnúsdóttir ÍH afreksbikar fyrir bestan árangur kvenna 16 ára og yngri. Sara fékk bikarinn fyrir að stökkva 1,35m í hástökki sem gefur 892 stig. Við útreikninga á árangri og stigagjöf urðu þau leiðinlegu mistök að árangur Hafdísar Ó. Valgeirsdóttir UMFB yfirsást en Hafdís stökk sömu hæð og Sara. Að vísu fór Sara yfir í færri tilraunum sem veitti henni gullverðlaun í hástökkinu. Aftur á móti gildir sú regla ekki í stigagjöf til afreksstiga og því eru þær stöllur Sara og Hafdís í raun báðar stigahæstar fyrir þessi ágætu stökk sín. Til hamingju Hafdís!

Héraðsmót yngri flokka í knattspyrnu. 24. júlí 2005
Mánudaginn 25. júlí fer fram 3. og síðasta umferðin í Héraðsmóti yngri flokka í knattspyrnu. Leikið verður á Tálknafirði og hefst keppnin klukkan 18:00 stundvíslega.

Stóra keppnin í knattspyrnu 23. júlí 2005
Á dögunum mættust ÍFB og UMFT í Stóru keppninni í knattspyrnu. Leikurinn var magnaður þar sem sigurmark leiksins var skorað á 3 mín í uppbótartíma. Leikurinn endaði 3-4 fyrir UMFT eftir að ÍFB hafði tvisvar komist yfir þ.e. í stöðunni 1-0 og 3-2.

Unglingalandsmót UMFÍ 2005- Skráning stendur yfir 20. júlí 2005
8. Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið dagana 29. - 31. júlí eða um verslunarmannahelgina. Á mótinu er keppt í ýmsum greinum eins og frjálsum íþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik, sundi, fitness, Golfi, skák, glímu og fl.

UMFT sigraði Héraðsmót HHF 2005 18. júlí 2005
Stærsta móti sumarsins, Héraðsmóti HHF, lauk í gær sunnudag á Völuvelli Bíldudal. Mótið gekk vel fyrir sig og keppnin milli félaga var hörð en þegar yfir lauk stóð UMFT uppi sem sigurvegari. Þess má geta að UMFT hefur ekki sigrað stigabikarinn góða í mörg ár þar sem ÍH og ÍFB hafa skipt titlinum á milli sín undanfarin ár og jafnvel áratugi. Til hamingju UMFT!

Héraðsmótið hefst í kvöld! 15. júlí 2005
Héraðsmót HHF hefst í kvöld með undanrásum í spretthlaupum. Mótið hefst klukkan 18:00 með 60m hlaupi hnokka 10 ára og yngri. Þar á eftir er 60m hlaup hnátur 10 ára og yngri kl. 18:20...

Undanrásum lokið! 15. júlí 2005
Í dag föstudaginn 15. júlí fórum fram undanrásir í spretthlaupum á Héraðsmótinu í blíðskaparveðri. 4 komust í úrslit í hverri grein. Þeir sem komust í úrslit eru...

Sameiginleg æfing fellur niður! 13. júlí 2005
Sameiginleg æfing í frjálsum íþróttum á Bíldudal fellur niður í dag miðvikudag vegna Héraðsmóts sem fram fer næstu helgi.

vize işlemleri Vize Forum
Lokaúrslit í Litlu-Keppni HHF sumarið 2005. 13. júlí 2005
Þriðjudaginn 12. júlí var lokaumferð Litlu-Keppni HHF í knattspyrnu leikin á Vatneyrarvelli á Patreksfirði. 3 lið áttu möguleika á sigri fyrir lokamótið en lið ÍH2 stóð uppi sem sigurvegari þegar yfir lauk. Lokastaðan var á þessa leið:

1. sæti lið ÍH2 21 stig.
2. sæti lið ÍH1 12 stig.
3. sæti lið UMFT 11 stig.
4. sæti lið ÍFB 4 stig

Litla-Keppni HHF í knattspyrnu - úrslitastund! 11. júlí 2005
Þriðjudaginn 12. júlí fer fram 3. og síðasta umferðin í Litlu-keppninni í knattspyrnu. Keppnin fer fram á Vatneyrarvelli á Patreksfirði og hefst klukkan 19:30 stundvíslega.

Keppnin er hörð þar sem 3 lið eiga ennþá möguleika á að hampa dollunni. Lið ÍH1, UMFT og ÍH2 eiga öll möguleika á sigri þó að möguleikar ÍH2 séu mestir þar sem liðið hefur 6 stiga forystu á UMFT fyrir síðustu umferðina. Lið ÍH1 og UMFT eiga ennþá von með 3 sigrum og hægstæðum úrslitum í öðrum viðureignum. Allir að mæta til að fylgjast með gæðabolta auk þess sem það er frítt á völlinn!

Héraðsmót HHF í frjálsum íþróttum. 11. júlí 2005
Hið árlega Héraðsmót HHF í frjálsum íþróttum verður haldið á Völuvelli Á Bíldudal dagana 15.-17. júlí næstkomandi. Héraðsmótið er stærsta mót sumarsins þar sem aðildarfélög HHF þ.e. ÍH, UMFT, ÍFB og UMFB takast á.

Mótið hefst með undanrásum í spretthlaupum föstudaginn 15. júlí kl. 18:00 og keppnin heldur svo áfram á laugardeginum kl. 10:00.

2. Kvöldmót HHF í frjálsum íþróttum. 10. júlí 2005
Mánudaginn 11. júlí fer fram 2. Kvöldmót HHF í frjálsum íþróttum. Keppt verður í langstökki og hástökki á Völuvelli á Bíldudal. Keppnin hefst stundvíslega kl. 19:30.

Síðan loksins komin í lag 8. júlí 2005
HHF.is komin á fullt. Héraðssambandið er komið í samband við umheiminn og er stefnan hjá okkur að halda úti þessari síðu og munu allar þær fréttir sem að tengjast okkur koma hingað á vefinn. Eins og flestir vita þá hefur Hrafna-Flóki ráðið Daníel Símon Galvez sem framkvæmdastjóra og er hann að vinna á fullu fyrir okkur og heyrist mér að flestir séu mjög sáttir við störf hans hingað til. Ég og Daníel munum svo reyna að vera duglegir að koma með fréttir og skrifa um allt það sem að skiptir máli í heimi íþróttana, allavega á okkar svæði. Þeir sem að hafa einhverjar fréttir fyrir okkar og/eða vilja koma einhverju á framfæri endilega að senda okkur mail á hhf@simnet.is
Með íþrótta kveðju
Guðm. Ingþór Formaður HHF.
© 2003 Héraðssambandið Hrafnaflóki (HHF), Aðalstræti 5, 450 Patreksfjörður
Sími: 456-1656, Netfang: hhf@simnet.is