|
Ekki er ennþá alveg komið á hreint hvaða staðir ná að senda lið í keppni. Heyrst hefur af áhugaleysi og manneklu á stöðunum í V-Barðastrandasýslu þetta sumar. HHF vill hvetja öll félögin á svæðinu til þess að mæta með lið til leiks og ná þannig að gera þetta skemmtilegt og vonandi spennandi mót í sumar. Nánari fréttir af gangi mála koma svo líklega fyrir helgi og á mánudag verður leikjaplanið og tímasetning á síðuna.
Ekki líður langt á milli næstu mót því að 20.júní (miðvikudagur) fer 1.umferð yngri flokkanna í knattspyrnu á Völuvelli á Bíldudal og 21.júní (fimmtudagur) verður fyrsta kvöldmót sumarsins og verður keppt í kúluvarpi og spjótkasti. Það er vonandi að félögin verði öflug að fá sína krakka til þess að vera með. En þá á eftir að setja niður fasta tímasetningu en það verður gert fljótlega.
Nú er mál að allir hjálpist að við að gera þetta að skemmtilegu, spennandi og líflegu íþróttasumri.
Fyrir hönd Héraðssambandsins Hrafna-Flóka, Aron Páll Hauksson framkvæmdarstjóri
|