HHF
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Aðildarfélög
Skrifstofa
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Mót
Verkefni
Stjórnsýsla
Stjórn
Nefndir
Fundargerðir
Lög og reglugerðir

Göngum um Ísland
júní mun verkefnið Göngum um Ísland, hefjast að nýju, en Ungmennafélag Íslands með stuðningi Heilbrigðisráðuneytisins, stóð fyrir verkefninu síðast liðið sumar við góðar undirtektir. Verkefnið miðar að því að fá landsmenn til að fara í gönguferðir og njóta þeirrar náttúrufegurðar og kyrrðar sem Ísland hefur upp á að bjóða og um leið byggja upp betra líkamsform. Göngum um Ísland verkefnið er ætlað að höfða til allra landsmanna en ekki síst til fjölskyldufólks.

Göngum um Ísland er meðal annars unnið í samstarfi við ungmennafélög um land allt, ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög. Ísland hefur að geyma gnótt gönguleiða og hafa nú verið valdar í samvinnu við heimamenn útvaldar gönguleiðir í hverju byggðarlagi.
Leiðabók með 200 gönguleiðum um land allt er gefin út í 50.000 eintökum og fæst gefins á Íþróttamiðstöðum, sundlaugum, upplýsingamiðstöðum og bensínstöðvum. Í verkefninu Göngum um Ísland er lögð áhersla á stuttar, stikaðar og aðgengilegar gönguleiðir.
Fjölskyldan á fjallið er einn liður í verkefninu. Settir eru upp póstkassar með gestabókum á 20 fjöllum víðsvegar um landið, en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að vera tiltölulega létt að ganga á. Markmiðið er að fá fjölskyldur í létta fjallgönguferð og stuðla þannig að aukinni samveru, útivist og um leið líkamsrækt innan fjölskyldunnar.
Stjórn og framkvæmd verkefnisins er í höndum þjónustumiðstöð UMFÍ hjá Ungmenna- og Íþróttasambandi Austurlands á Egilsstöðum.

Vefur Göngum um Ísland
dizi izlepornolarporno tv/a>sex
porno izle
sex izle
sikiş
bakire sikiş
sex
porno
film izle
Til baka
© 2003 Héraðssambandið Hrafnaflóki (HHF), Aðalstræti 5, 450 Patreksfjörður
Sími: 456-1656, Netfang: hhf@simnet.is