HHF
Forsíða
Fréttir
Atburðadagatal
Aðildarfélög
Skrifstofa
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Starfsemi
Mót
Verkefni
Stjórnsýsla
Stjórn
Nefndir
Fundargerðir
Lög og reglugerðir

Hættum að reykja

Framhaldsstarf hvatningarátaks UMFÍ er nú i fullum gangi. Efnt hefur verið til samkeppni SYNGIÐ SJÁLF, þar sem börn og unglingar eru hvött til að syngja lögin á geisladisknum Hættum að reykja og senda upptöku á kasettu eða geisladiski til Þjónustumiðstöðvar UMFÍ. Þá er einnig hafin SLAGORÐASAMKEPPNI gegn reykingum og VERÐLAUNAGETRAUN. Veglegir vinningar tengdir íþróttum, tónlist og ferðalögum verða veittir fyrir besta flutning á lagi, rétt svör og besta slagorð.

Geisladiskurinn Hættum að reykja með Birgittu Haukdal, Jónsa í Svörtum fötum, Hreimi í Landi og sonum og Jóhönnu Guðrúnu nýtur mikilla vinsælda hjá ungu fólki en á disknum eru lögin Tóm tjara, Svæla svæla og Furðuverk.

Geisladiskinn Hættum að reykja er hægt að panta hjá UMFÍ og hægt að nota til fjárölfunar fyrir ungmennafélög og deildir, skóla eða félagsmiðstöðvar. Upptökur með lögum, slagorð eða svör í getraunaleiknum sendist til Þjónustumiðstöðvar UMFÍ, Fellsmúla 26, 108 Reykjavík, merkt "´Hættum að reykja - syngið sjálf", Hættum að reykja - slagoðrasamkeppni",
Til baka
© 2003 Héraðssambandið Hrafnaflóki (HHF), Aðalstræti 5, 450 Patreksfjörður
Sími: 456-1656, Netfang: hhf@simnet.is