Þrír ungir frjálsíþróttakrakkar frá HHF tóku þátt í Bronsleikum ÍR sem haldnir voru í Laugardalshöllinni þann 3. október síðastliðinn.
Bronsleikar ÍR eru haldnir til heiðurs Völu Flosadóttur, einum fremsta stangarstökkvara Íslands, sem á skemmtilega tengingu við íþróttastarf á svæðinu okkar. Vala æfði með ÍFB á sínum yngri árum áður en frjálsíþróttaferill hennar tók hana alla leið á stærsta svið íþróttanna.
Að þessu sinni átti HHF þrjá þátttakendur á mótinu, þau Hauk Leó, Unu Hervöru og Glódísi Freyju. Þau stóðu sig öll svakalega vel, lögðu sig fram og voru HHF svo sannarlega til sóma.
Það er alltaf dýrmætt fyrir unga iðkendur að fá tækifæri til að fara á mót, prófa sig áfram í keppni og hitta aðra krakka sem stunda frjálsar íþróttir. Slík reynsla skiptir miklu máli, ekki síst fyrir krakka sem stunda íþróttir í fámennari byggðum þar sem ferðalög eru stór hluti af því að geta tekið þátt í mótahaldi.
Við hjá HHF erum afar stolt af okkar fólki og óskum Hauki Leó, Unu Hervöru og Glódísi Freyju innilega til hamingju með frábæra frammistöðu á Bronsleikunum!