Minniboltamót Vestfjarða fór fram í Bröttuhlíð á Patreksfirði sunnudaginn 1. nóvember. HHF íþróttafélag tók á móti Vestra frá Ísafirði og var mikið líf og fjör í íþróttahúsinu.
Keppt var í tveimur aldursflokkum, 1.–2. bekk og 3.–4. bekk. Alls tóku þátt á mótinu sjö lið eða 35 krakkar og var gleðin í fyrirrúmi frá upphafi til enda.
Markmið mótsins var fyrst og fremst að gefa krökkunum tækifæri til að spila körfubolta, öðlast reynslu, hitta krakka frá öðrum stöðum á Vestfjörðum og njóta þess að vera saman í íþróttum. Það má með sanni segja að það hafi tekist vel – stemningin var frábær og krakkarnir skemmtu sér konunglega.
Mikilvægt er fyrir íþróttastarf á Vestfjörðum að skapa tækifæri sem þessi fyrir yngstu iðkendurna, þar sem félögin geta hist, keppt og byggt upp tengsl þvert á byggðarlög.
HHF þakkar Vestra kærlega fyrir komuna á Patreksfjörð og öllum krökkunum, þjálfurum, foreldrum og öðrum sem lögðu sitt af mörkum til að gera daginn skemmtilegan.
Við hlökkum til næsta minniboltamóts sem haldið verður á Ísafirði laugardaginn 3. apríl ! 🏀