Alls tóku 23 keppendur frá HHF þátt í Silfurleikum ÍR sem fram fóru í Laugardalshöllinni um helgina. Þar af voru fimm keppendur í flokki 7 ára og yngri, einn í flokki 8–9 ára og fimm í flokki 10–11 ára. Margir voru að taka þátt í sínu fyrsta stóra frjálsíþróttamóti og öðluðust þar dýrmæta keppnisreynslu.
Keppendur HHF stóðu sig einstaklega vel og uppskeran var fjögur gullverðlaun, þrjú bronsverðlaun, þrjú ný héraðsmet, persónulegar bætingar og fjölmargar glæsilegar frammistöður! 👏
Verðlaunasæti:
🥇 Frosti Þór – Hástökk, 1,74 m
🥉 Frosti Þór – Kúluvarp, 11,82 m
🥇 Daníel Már – Kúluvarp, 12,06 m
🥇 Óskar – Hástökk, 1,47 m
🥇 Óskar – Kúluvarp, 11,79 m
🥉 Alexander Nói – 800 m hlaup, 2:42,06
🥉 Ívar Enok – Hástökk, 1,42 m
Ný héraðsmet HHF:
🌟 Daníel Már – Þrístökk, 10,66 m
🌟 Fanndís – Þrístökk, 8,56 m (7. sæti)
🌟 Aría – Skutlukast, 15,35 m
Brot af fleiri flottum frammistöðum keppenda HHF:
⭐ Victoria Rós – 200 m, 34,40 sek. (6. sæti)
⭐ Elma – Kúluvarp, 7,35 m (5. sæti)
⭐ Hlédís – Kúluvarp, 7,09 m (7. sæti)
⭐ Haukur Leó – Skutlukast, 21,07 m (9. sæti)
⭐ Inga Sól – Kúluvarp, 7,61 m (4. sæti)
⭐ Michael – Kúluvarp, 6,58 m (4. sæti) og hástökk, 1,36 m (5. sæti)
⭐ Sigurður Sean – Kúluvarp, 6,53 m (6. sæti)
Árangur er margs konar og er ekki eingöngu mældur í verðlaunum, sætum eða metum. Margir keppenda okkar voru að bæta sinn persónulega árangur, aðrir að öðlast meiri keppnisreynslu og enn aðrir að stíga sín fyrstu skref í keppni.
Það er virkilega gaman að fylgjast með framförum, metnaði, hugrekki og keppnisgleði hjá okkar unga og efnilega frjálsíþróttafólki. Við fögnum öllum þessum áföngum og erum einstaklega stolt af öllum 23 keppendunum okkar! 💙
Innilegar hamingjuóskir til allra keppenda og kærar þakkir til þjálfara og foreldra fyrir stuðninginn.
📊 Öll úrslit mótsins:
https://timataka.net/silfurleikar2026/tf/
Næsta mót hjá ÍR er Stórmót ÍR sem fram fer 6.–7. febrúar 2027. Skráning hefst 10. desember kl. 12:00.
Áfram HHF! 💪