24. mars 2026
Mótið var með hefðbundnu sniði þar sem yngsta kynslóðin sýndi listir sínar í hinum ýmsu þrautum. Keppendur tóku þátt í fimm stöðvum sem reyndu á úthald, hopp, köst og sprett.
Metþátttaka var á mótinu og var virkilega gaman að sjá húsið lifna svona við með fullum sal af iðkendum og fylgdarliði. Yngstu voru fædd 2024 og þau elstu 2017. Skipt var í fjóra hópa og var hver stöð í fimm mínútur svo það má segja að mikið hafi gengið á í Bröttuhlíð. Eftir keppnina fengu allir þátttöku pening, lítinn bolta og klapp frá áhorfendum.
Í þessum hópi eru næstu iðkendur í frjálsum íþróttum á svæðinu og má með sanni segja að framtíðin er björt miðað við tilþrifin sem sáust á laugardaginn.
Keppni hjá 10-16 ára var öllu hefðbundnari þar sem keppt var í langstökki og þrístökki án atrennu, hástökki, kúluvarpi, skutlukasti og langhlaupi.
Héraðssambandið heldur utan um bestu árangra hvers aldurs á heimasíðu sinni og er mikið kapp lagt á að komast í topp þrjú á þeim listum og hvað þá að setja nýtt héraðsmet sem er náttúrulega toppurinn. En nú þarf að gæta þess að síðustu ár höfum við verið að framleiða marga af bestu frjálsíþróttakrökkum landsins svo næsta kynslóð á sífellt erfiðara með að slá út núverandi met en það tekst þó ennþá og sáum við nokkur met sett á þessu móti.
Victoría Rós Sæmundsdóttir 16 ára setti þrjú ný héraðsmet á mótinu í langstökki 2.05 m, þrístökki 6.30 m og hástökki. Gott mót hjá henni og þó sérstaklega í hástökki þar sem hún stökk 1.43 m.
Frosti Þór Ásgeirsson 15 ára átti líka frábært mót og setti fjögur héraðsmet. Langstökk 2.69 m, þrístökk 7.33 m, hástökk 1.65 m og felldi naumlega 1.70 m, skutlukast en þar vandast málið því hann henti ítrekað yfir allt húsið í vegginn svo það varð að áætla kastlengdina 40 m en sigurinn var aldrei í hættu og því í raun engin þörf á nákvæmri mælingu.
Aría Matthea Guðbjartsdóttir 11 ára setti svo nýtt héraðsmet í skutlukasti þegar hún kastaði skutlunni 12.24 m. Efnileg stúlka þar á ferð og á vonandi eftir að setja fleiri met á næstu mótum.
Mörg náðu að komst á listann yfir topp þrjá og verður gaman að sjá á jólamótinu hvort og hvaða met falla.
55 keppendur tóku þátt á mótinu og er það nýtt met í fjölda sem er jákvætt og algjörlega í anda þess sem við áttum von á. Það er mikilvægt í íþróttum sem öðru að hafa fyrirmyndir og það höfum við svo sannarlega hjá okkur í HHF. Yngri kynslóðin sér marga af fremsta frjálsíþróttafólki landsins etja kappi í íþróttahúsinu sínu og það á að veita þá þeim vængi og trú á hversu langt þau geta náð. Við trúum á þau.