Sunnudaginn 16. nóvember fór fram Bogfimimót HHF, góð mæting var á mótið og fór keppni vel fram. Keppt var í þremur aldursflokkum, undir 13 ára sem kepptu á 6metra færi, undir 16 ára sem kepptu á 12metra færi og svo meistaraflokkur sem keppti á 18 metra færi. Einnig var keppt í flokkum óvanra og kepptu þeir á 12 metra færi.
Laugardaginn 22. nóvember fóru fram hinir árlegu Silfurleikar ÍR í frjálsum íþróttum, einn stærsti innanhússviðburður ársins. Nafn mótsins er dregið af mögnuðu afreki Vilhjálms Einarssonar sem vann til silfurverðlauna í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne árið 1956, afrek sem hefur markað sig djúpt í sögu íslenskra frjálsíþrótta.
Héraðssambandið Hrafna Flóki sendi glæsilegan hóp keppenda, þjálfara og fylgdarfólks á mótið. Keppt var í öllum helstu frjálsíþróttagreinum sem stunda má innanhúss og gátu börn á aldrinum 7–17 ára tekið þátt. Alls voru rúmlega 600 keppendur af landinu öllu skráðir til leiks og því sannkallaður hátíðisdagur í Laugardalshöllinni.
HHF var með 21 keppanda, sem öll sýndu frábæran árangur, góða íþróttamennsku og voru til algerrar fyrirmyndar innan sem utan vallar.
Haukur Leó Ásgeirsson í langstökki
Glódís Freyja Ásgeirsdóttir í þrautabraut
Una Hervör Oddsdóttir í langstökki
Verðlaunaafhending
Stór hópur 11 ára iðkenda frá HHF
Flottir fulltrúar
Sigurður Sean Gunnarsson og Michael Thor Sæmundsson
Tilbúnir í langhlaupið
Victoría Rós Sæmundsdóttir í kúluvarpi
Frosti Þór Ásgeirssson á palli í hástökki
Fanndís Fía Pálsdóttir í langstökki
Stund á milli stríða
Stærsta stund dagsins úr okkar röðum var þó án efa þegar Daníel Már Ólafsson setti glæsilegt Íslandsmet í kúluvarpi 13 ára drengja með 4 kg kúlu. Daníel varpaði kúlunni 12,91 m og bætti fyrra met um tæpan meter, afrek sem ekki gerist á hverjum degi. Daníel hefur á undanförnum árum unnið til fjölda verðlauna og er orðinn einn efnilegasti frjálsíþróttamaður landsins þrátt fyrir ungan aldur. Við í HHF óskum Daníel, fjölskyldu hans, liðsfélögum og þjálfurum innilega til hamingju með þennan magnaða árangur.
Heiðursgestur mótsins var Unnar Vilhjálmsson, sonur Vilhjálms Einarssonar. Unnar hefur í mörg ár verið áberandi á frjálsíþróttamótum víða um land og var sjálfur frábær íþróttamaður á sínum tíma, rétt eins og faðir hans. Með honum á mótinu var bróðir hans, Einar Vilhjálmsson, landsmönnum kunnugur sem einn fremsti spjótkastari Íslands fyrr og síðar.
Einar sá einmitt um mælingar og dómgæslu í kúluvarpinu þegar Daníel kastaði metkasti sínu og skapaði ótrúlega stemningu á brautinni. Það má með sanni segja að dagurinn hafi verið einstakur og það var ekki á hverjum degi sem sjá má saman á mynd bestu spjótkastara Íslands og einn efnilegasta kúluvarpara landsins.