Haldið í Félagsheimili Patreksfjarðar 10. apríl 2026
Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka fór fram þann 10. apríl 2026 í Félagsheimili Patreksfjarðar þar sem fulltrúar aðildarfélaga, gestir og samstarfsaðilar komu saman til að fara yfir starfsemi liðins árs og móta áherslur til framtíðar.
Þingið var sett af formanni HHF, Birnu Friðbjörtu S. Hannesdóttur, og var dagskrá þingsins hefðbundin með skýrslu stjórnar, framlagningu reikninga og afgreiðslu tillagna. Reikningar sambandsins voru samþykktir samhljóða að loknum umræðum.
Í ávörpum gesta var lögð rík áhersla á mikilvægi íþróttastarfs fyrir samfélagið. Guðný Stefanía Stefánsdóttir, fulltrúi Ungmennafélag Íslands fjallaði um gildi sjálfboðaliðastarfs og áskoranir tengdar breyttum tekjustofnum í íþróttahreyfingunni.
Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, lagði áherslu á að íþróttir væru lykilþáttur í lýðheilsu og mikilvægt væri að stjórnvöld og íþróttahreyfingin ynnu þétt saman að uppbyggingu starfsins.
Einn af hápunktum þingsins var þegar Héraðssambandið Hrafna-Flóki hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað frá Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Viðurkenningin var afhent á þinginu af Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ.
Viðurkenningin staðfestir að HHF uppfyllir þau gæðaviðmið sem gerð eru til íþróttahéraða, meðal annars hvað varðar fagleg vinnubrögð, skipulag og markvissa þróun íþróttastarfs.
Með viðurkenningunni er jafnframt lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu þar sem markmiðið er að styðja aðildarfélög til að þróast áfram sem Fyrirmyndarfélög og þannig efla enn frekar öflugt og samræmt íþróttastarf á svæðinu.
Við afhendinguna var lögð áhersla á að viðurkenningin væri ekki endastöð heldur mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð. Markmiðið er að byggja upp sjálfbært og vandað íþróttastarf sem hefur jákvæð og varanleg áhrif á samfélagið og lífsgæði íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum.
Á þinginu voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag til íþróttastarfs á svæðinu.
Starfsmerki UMFÍ hlutu Lilja Sigurðardóttir og Skjöldur Pálmason fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála
Gullmerki UMFÍ hlaut Sigurður Viggósson fyrir langvarandi og öflugt framlag
Silfurmerki ÍSÍ hlaut Þórður Sveinsson fyrir áratugalangt starf í þágu íþróttastarfs, meðal annars sem formaður UMFB í um 30 ár
Willum Þór Þórsson veitti einnig Ásgeiri Sveinssyni Eirmerki FRÍ, fyrir hönd sérsambandsins, fyrir framlag sitt til frjálsra íþrótta á svæðinu
Heiðranir frá UMFÍ
Heiðranir frá ÍSÍ
Heiðranir frá FRÍ
Á þinginu voru samþykktar lagabreytingar ásamt úthlutunarreglum um nýjan Verkefna- og búnaðarsjóð sem og reglur um stjórn sjóðsins, sem ætlað er að styrkja enn frekar starfsemi aðildarfélaga og skapa skýrari umgjörð um stuðning við verkefni og uppbyggingu.
Einnig var kynnt vinna starfshópa, meðal annars um framtíðarskipulag íþróttastarfs barna og ungmenna þar sem stefnt er að aukinni samhæfingu og sameiningu íþróttafélaga undir einni heild. Einnig var stefnumótunarvinna um íþróttamál á Vestfjörðum kynnt og starfshópur sem hefur unnið að framkvæmd og uppsetningu götu- og víðavangshlaupa á sunnanverðum Vestfjörðum. Fyrsta löglega götuhlaupið verður haldið um sjómannadagshelgina í ár, hið svokallaða Eyfahlaup.
Á þinginu var kosið í stjórn Héraðssambandið Hrafna-Flóki og var Birna Friðbjört Hannesdóttir endurkjörin formaður sambandsins.
Einnig voru Gunnþórunn Bender og Lilja Sigurðardóttir endurkjörnar í aðalstjórn til tveggja ára. Í varastjórn gáfu Þórkatla Soffía Ólafsdóttir og Nancy Rut Helgadóttir áfram kost á sér, auk þess sem Halldór Jökull Ólafsson kemur nýr inn í varastjórn.
Kosningar fóru fram samhljóða sem endurspeglar traust og samstöðu um áframhaldandi uppbyggingu starfsins.
Áhersla þingsins var skýr – áframhaldandi uppbygging byggir á samvinnu, skýrri sýn og sameiginlegri ábyrgð allra aðila. Samstarf við Vesturbyggð sveitarfélag og önnur íþróttahéruð er lykilatriði í að efla íþróttastarf og tryggja jöfn tækifæri fyrir börn og ungmenni á svæðinu.
Héraðsþingið staðfesti að íþróttastarf á svæðinu er í sókn, með aukinni þátttöku og skýra framtíðarsýn þar sem áhersla er lögð á heilbrigða íþróttamenningu, samvinnu og faglega uppbyggingu til lengri tíma.