Frosti Þór Ásgeirsson, frjálsíþróttamaður hjá HHF, hefur verið valinn í æfingahóp Unglingalandsliðs Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) fyrir tímabilið 2026–2027.
Frosti Þór hefur náð góðum árangri í hástökki og á best 1,74 metra í greininni.
Valið í æfingahóp Unglingalandsliðsins er skemmtilegur áfangi og viðurkenning á þeirri vinnu sem Frosti hefur lagt í æfingar og keppni.
Við hjá HHF óskum Frosta Þór innilega til hamingju með valið og hlökkum til að fylgjast með honum áfram á frjálsíþróttavellinum.