18. maí 2026
Golfklúbburinn á Bíldudal hefur tekið í notkun sjálfvirkan slátturóbóta frá FJ Dynamics sem mun sinna slætti á golfvellinum í sumar.
Róbótinn nýtir háþróað staðsetningar- og skynjarakerfi til að slá völlinn af mikilli nákvæmni og getur unnið sjálfstætt við fjölbreyttar aðstæður. Með þessari lausn er hægt að halda vellinum betur snyrtum allan sólarhringinn á sama tíma og vinnuálag og rekstrarkostnaður minnkar.
Agro ehf. er söluaðili FJ Dynamics á Íslandi og sér um þjónustu og ráðgjöf hér á landi.
Það er skemmtilegt að sjá nýja tækni og sjálfvirkar lausnir ryðja sér til rúms á íslenskum golfvöllum, þessi tækni hjálpar minni golfvöllum mikið því margir hverjir eru unnir í sjálfboðavinnu og þá munar um alla aðstoð sem er sjálfvirk — og ekki síst í þessari einstöku náttúrufegurð við Arnarfjörð.