Stórmót ÍR var haldið í Reykjavík 7. og 8. feb og átti HHF gríðarlega stóran hóp keppenda eða 20 af rúmlega 600 keppendum komu úr okkar röðum. Gríðarlega mikið og metnaðarfullt starf sem er unnið hjá ÍH og fjölgar stöðugt í hópi fremsta frjálsíþróttafólki landsins sem kemur úr því starfi. Í þrautabraut hjá 7-8 ára kepptu Glódís Freyja Ásgeirsdóttir, Unnur Bára Gunnarsdóttir og Ólöf María Davíðsdóttir. Í þrautabraut 9-10 ára kepptu Haukur Leó Ásgeirsson, Sigurður Carlos Da Silva Liljuson og Una Hervör Oddsdóttir.
Hjá 11-12 ára er keppt í fimmtarþraut þar sem samanlagður árangur úr fimm greinum er lagður saman og úrslit fengin með þeim hætti. Aría Matthea Guðbjartsdóttir og Elías Ýmir Davíðsson keppti í flokki 11 ára. Aría endaði í 9 sæti í þrautinni og hennar besti árangur var í kúluvarpi þar sem hún var í þriðja sæti. Elías var í 11 sæti og hans besti árangur var að sigra kúluvarpið. Sannarlega flott fyrsta mót hjá þessum tveim.
Unnur Bára Gunnarsdóttir, Ólöf María Davíðsdóttir og Glódís Freyja Ásgeirsdóttir.
Una Hervör Oddsdóttir, Sigurður Carlos, Haukur Leó Ásgeirsson.
Fyrir miðri mynd er Elías Ýmir Davíðsson að taka á móti verðlaunum.
Sigurður Carlos, Una Hervör og Haukur Leó að taka á móti verðlaunum.
Michael Thor Sæmundsson, Sigurður Sean Gunnarsson, Ívar Enok Sigurpálsson og Inga Sól Ólafsdóttir í flokki 12 ára. Ívar endaði í 3 sæti og átti frábært mót þar sem hann meðal annars vann kúluvarpið. Michael varð í 8 sæti í heildarkeppninni og varð í 2 sæti í hástökki. Sigurður Sean varð í 9 sæti og hans besti einstaki árangur var í kúluvarpi þar sem hann var annar á eftir Ívari. Inga Sól varð þriðja í kúluvarpi sem var hennar besti árangur á mótinu.
Fanndís Fía Pálsdóttir, Sæmundur Óli Davíðsson og Óskar Elí Ísaksson kepptu í flokki 13 ára. En þar er keppt í greinum og sigurvegari fundinn eftir hverja grein. Fanndís glímdi við meiðsli allt mótið og náði ekki sínu besta þrátt fyrir mikla keppnishörku en hún kemur bara sterkari á næsta mót. Óskar og Sæmundur áttu frábært mót og náðu á pall í nokkrum greinum og voru t.d í öðru og þriðja sæti í hástökki. Óskar keppti í stangarstökki og vann til gullverðlauna á nýju héraðsmeti 1.98 metrum.
Alexander Nói Ásgeirsson, Daníel Már Ólafsson, Hlédís Karen Elvardóttir, Elma Lind Guðbjartsdóttir og Alexandra Líf Gunnarsdóttir kepptu í flokki 14 ára. Nói keppti í 3000 metra hlaupi með fullorðnum og stóð sig frábærlega og landaði nýju héraðsmeti. Daníel vann kúluvarpið og bætti héraðsmet sitt um 1 cm frá síðustu helgi. Daníel keppti líka í stangarstökki og vann brons. Stelpurnar stóðu sig mjög vel og voru við toppinn í þeim greinum sem þær tóku þátt í og náðu persónulegum bætingum í nokkrum greinum.
Sigurður Sean Gunnarsson, Ívar Enok Sigurpálsson og Micheal Thor Sæmundsson.
Inga Sól, Ásgeir þjálfari, Alexander Nói og Michael spá í stöðuna.
Ívar Enok býr sig undir að varpa kúlunni.
Feðgarnir Ásgeir og Haukur brosandi kátir og Nói hvílir lúin bein í bakgrunni.
Frosti Þór Ásgeirsson 15 ára keppti í hástökki, stangarstökki og kúluvarpi. Frosti vann hástökkið og stangarstökkið og endaði í þriðja sæti í kúluvarpi. Stangarstökkið með lánaða stöng var virkilega flott og vakti það athygli þjálfara annara félaga að hann ætti hvorki stöng, atrennu né þjálfara og væri að stökkva þetta í fyrsta sinn síðan á mótinu í fyrra þegar hann prófaði greinina í fyrsta sinn. Hann stökk yfir 2.60 metra sem hefðu dugað honum til að verða Íslandsmeistari helgina áður en þá keppti hann ekki í þessari grein.
Victoría Rós Sæmundsdóttir keppti í flokki 16-17 ára þar sem hún er á yngra ári. Victoría keppti í nokkrum greinum og landaði silfri í þrístökki með glæsilegu stökki sem var nálægt héraðsmetinu hennar frá því á MÍ og því bara spurning hvort hún bæti það ekki strax þegar færið gefst. Góður árangur og gott mót hjá henni.
HHF endaði í 5 sæti af 27 félögum sem unnu flest verðlaun á mótinu og voru stór félög fyrir aftan okkur eins og Akureyri, Selfoss og Fjölnir í Grafarvogi svo einhverjir séu nefndir. Við erum gríðarlega öflug þrátt fyrir fámennið en með markvissu starfi, styrktaraðilum og aðstöðu sem sífellt er verið að bæta eru okkur allir vegir færir næstu árin. Efniviðurinn er til staðar og það er okkar allra að passa upp á þessa frábæru krakka sem leggja á sig mikla vinnu í að bæta sig og sinn árangur innan og utan vallar.
Óskar Elí Ísaksson ánægður með daginn. Gull í stangarstökki og brons í hástökki.
Hlédís Karen Elvarsdóttir mjög einbeitt.
Frosti Þór Ásgeirsson og Guðjón vinur hans frá ÍR
Daníel Már Ólafsson að taka við gullverðlaunum í kúluvarpi.