Föstudaginn 5. desember var Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans. Tekið var upp á þeirri nýbreytni í ár hjá ÍSÍ og UMFÍ að lyfta starfi sjálfboðaliðans upp enn meira en áður og valinn sjálfboðaliði ársins á Vestfjörðum. Héruð og íþróttafélög voru hvött til að senda inn tilnefningar og síðan var einn einstaklingur valinn af handahófi úr innsendum tilnefninum.
Á sunnanverðum Vestfjörðum voru tveir einstaklingar tilnefndir og voru það Davíð Bredesen í Golfklúbbi Patreksfjarðar og Hlynur Aðalsteinsson í Golfklúbbi Bíldudals. Hafa þeir báðir sinnt störfum fyrir hönd klúbbanna í sjálfboðaliðastarfi og lagt mikinn tíma í að bæta og fegra vellina. Við þökkum þeim fyrir það óeigingjarna starfs sem þeir sinna.
Sjálfboðaliði ársins á Vestfjörðum var Þorgerður Karlsdóttir hjá Íþróttafélaginu Stefni á Suðureyri.
Miðvikudaginn 10. desember var 20 ára afmæli Íþróttahúsið Bröttuhlíðar fagnað með opnu húsi þar sem íbúum Patreksfjarðar og nágrennis var boðið að kynna sér það fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarf sem fer fram á Patreksfirði.
Afmælishátíðin var vel sótt og ríkti mikil gleði í Bröttuhlíðinni. Gestir fengu m.a. innsýn í starf Íþróttafélagsins Harðar, prófuðu æfingar, hittu þjálfara og fengu upplýsingar um æfingatíma og starfsemi félagsins. Í Bröttuhlíð fer fram öflugt íþróttastarf fyrir börn, unglinga og fullorðna, þar sem áhersla er lögð á hreyfingu, gleði, samveru og jákvætt umhverfi.
Einnig var vakin athygli á mikilvægi styrktaraðila fyrir starfsemi félagsins, en stuðningur einstaklinga og fyrirtækja skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í heimabyggð. Íþróttafélagið Hörður, Lionsklúbbur Patreksfjarðar, Oddi hf og Vestri ehf gáfu rausnarlegar gjafir í tilefni dagsins sem mun nýtast vel til frekari uppbyggingar.
Bröttuhlíð hefur í tuttugu ár verið mikilvæg miðstöð hreyfingar, félagslífs og samveru á Patreksfjörður og gegnir áfram lykilhlutverki í heilsueflingu og samfélagslegri samheldni. Við þökkum öllum sem lögðu leið sína í Bröttuhlíð og tóku þátt í hátíðinni – og hlökkum til næstu ára í hreyfingu saman.
Birna formaður ÍH færði Atla, forstöðumanni Bröttuhlíðar digital myndaramma
Sigurður Viggósson afhenti Atla, áritaða treyju að gjöf
Gerður bæjarstjóri Vesturbyggðar flutti góða ræðu um mikilvægi Bröttuhlíðar fyrir samfélagið
Félög á svæðinu kynntu starfsemi sína
HHF átti níu keppendur á Aðventumóti Ármanns sem fór fram í Laugardalshöllinni 13. desember síðastliðinn.
Haukur Leó og Glódís Freyja kepptu í þrautabraut, Dalrós Ása Erla, Inga Sól, Ívar Enok, Sigurður Sean, Daníel Már og Alexander Nói kepptu í fjölþraut og Frosti Þór keppti í hástökki karla.
Margar persónulegar bætingar urðu á mótinu og er virkilega gaman að fylgjast með framför krakkanna og hjálpa þeim að ná markmiðum sínum.
Á dögunum hélt Íþróttafélagið Hörður sitt árlega Jólafjör í Íþróttahúsið Bröttuhlíðar, þar sem gleði, hreyfing og samvera voru í forgrunni. Börn, unglingar og fjölskyldur komu saman og tóku þátt í fjölbreyttum leikjum og íþróttum í jólalegum anda. Húsið fylltist af hlátri, hreyfingu og notalegri stemningu þar sem jólaskapið fékk að njóta sín.
Jólafjör ÍH er kærkomin hefð sem markar skemmtilegan endi á önninni og undirstrikar mikilvægi íþróttastarfs sem vettvangs fyrir samveru, gleði og jákvætt samfélag – ekki síst á aðventunni.
Íþróttafélagið Hörður þakkar öllum sem tóku þátt, jafnt iðkendum, foreldrum, sjálfboðaliðum og þjálfurum, og óskar félagsmönnum og íbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Jólamót HHF fór fram laugardaginn 20. desember. Þar spreyttu 15 krakkar á aldrinum 9 ára og yngri í þrautabraut og stóðu þau sig með mikilli prýði. Þrautabrautin samanstóð af 6 stöðvum þar sem þau fengu að kasta, stökkva, hoppa og hlaupa.
Þá tók við keppni í 10-16 ára flokki og voru þar 13 keppendur. Mikil og hörð keppni var í nokkrum greinum og virkilega spennandi að fylgjast með.
Nokkur héraðsmet féllu þennan daginn:
Þrístökk án atrennu - Fanndís Fía Pálsdóttir stökk 5.52 m
Hástökk á parketi - Óskar Elí jafnaði héraðsmetið, stökk 1.40m
Langstökk án atrennu - Daníel Már Ólafssson stökk 2.30 m
Þrístökk án atrennu - Daníel Már Ólafsson stökk 6.80 m
Langstökk án atrennu - Frosti Þór Ásgeirsson stökk 2.53 m
Þrístökk án atrennu - Frosti Þór Ásgeirsson stökk 7.30 m
Skutlukast - Frosti Þór Ásgeirsson kastaði 29.32 m
Frosti Þór, Daníel Már, Óskar Elí ásamt Ásgeiri þjálfara. Allir eiga þeir sama héraðsmetið í hástökki 12 ára innanhúss, 1.40.