Meistaramót Íslands 15-22 ára var haldið í Reykjavík 16.-17. janúar og átti HHF tvo keppendur á því móti þau Victoríu Rós Sæmundsdóttir og Frosta Þór Ásgeirsson. Victoría Rós keppti í 60 metra hlaupi, 200 metra hlaupi, þrístökki og kúluvarpi. Hennar besti árangur var í þrístökki þar sem hún setti nýtt héraðsmet þegar hún stökk 8.65 metra og endaði í 6.sæti í keppninni.
Frosti Þór keppti í hástökki, langstökki og kúluvarpi. Frosti sem er að koma til baka eftir þrálát hnémeiðsli náði ekki að verja Íslandsmeistaratign sína í hástökki en endaði í þriðja sæti með stökk upp á 1.60 metra og var svo í fimmta sæti í kúluvarpi.
Victoría stolt af nýju héraðsmeti 16 ára stúlkna í þrístökki innanhús.
60 metrar ekkert mál
Frosti í þriðja sæti í hástökki
Meistaramót Íslands 11-14 ára var haldið 31. jan-1. feb í Reykjavík. HHF átti 6 keppendur á mótinu og það voru þau Inga Sól Ólafsdóttir, Michael Thor Sæmundsson, Fanndís Fía Pálsdóttir, Óskar Elí Ísaksson, Daníel Már Ólafsson og Alexander Nói Ásgeirsson.
Mikla bætingar og góður árangur náðist á mótinu þar sem meðal annars Daníel Már varði Íslandsmeistaratitil sinn í kúluvarpi með yfirburðum þegar hann varpaði kúlunni 12.54 metra.
Nói, Daníel og Óskar meir en til í þetta mót.
Frænkurnar Inga Sól og Fanndís Fía spenntar að byrja þetta mót.
Micheal að bíða eftir að spretta 60metra
Meistaramót Íslands 11-14 ára var haldið 31. jan-1. feb í Reykjavík. HHF átti 6 keppendur á mótinu og það voru þau Inga Sól Ólafsdóttir, Michael Thor Sæmundsson, Fanndís Fía Pálsdóttir, Óskar Elí Ísaksson, Daníel Már Ólafsson og Alexander Nói Ásgeirsson.
Miklar bætingar og góður árangur náðist á mótinu þar sem meðal annars Daníel Már varði Íslandsmeistaratitil sinn í kúluvarpi með yfirburðum þegar hann varpaði kúlunni 12.54 metra.