Dagana 23.–30. september fer fram #BeActive – Íþróttavika Evrópu og í ár verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í Vesturbyggð þar sem markmiðið er einfalt: að fá sem flesta til að hreyfa sig og prófa eitthvað nýtt.
Íþróttavika Evrópu er haldin árlega á sama tíma í fjölmörgum Evrópulöndum. Vikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi, og sérstök áhersla er lögð á að virkja fólk til meiri hreyfingar í daglegu lífi.
Í #BeActive vikunni verður ýmislegt um að vera á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal og dagskráin nær til barna, ungmenna, fullorðinna og 60+.
Meðal þess sem verður hægt að prófa eru fótbolti, körfubolti, frjálsar íþróttir, blak, badminton, borðtennis, bogfimi, futsal, WOD, jóga, Pilates, Zumba Gold og ýmiss konar styrktar- og hreyfitímar. Einnig verða göngur, fjölskyldutímar, leikskólatími, plokkdagur og fleiri viðburðir.
Margir tímanna verða opnir prufutímar og/eða þátttakendum að kostnaðarlausu og því er þetta kjörið tækifæri til að prófa eitthvað sem maður hefur kannski lengi langað til að prófa.
#BeActive snýst þó ekki eingöngu um skipulagðar íþróttir. Göngutúr, hjólreiðar, sund, útivera eða einfaldlega aðeins meiri hreyfing í daglegu lífi telst líka með. Yfirskrift átaksins árið 2026 er #BeActive your way – að fólk finni sína eigin leið til að hreyfa sig, án pressu eða samanburðar.
Fyrirtæki og þjónustuaðilar á svæðinu eru einnig hvattir til þátttöku og þegar hafa fyrirtæki bæst í hópinn með sérstök #BeActive tilboð og hollari valkosti.
Dagskráin er enn í vinnslu og fleiri viðburðir og tilboð geta bæst við. Við hvetjum því alla til að fylgjast vel með, skoða dagskrána og taka dagana frá.
Endilega deilið og látið berast – og verum dugleg að taka þátt!
23.–30. september – hreyfum okkur saman.
#BeActive #HHF #HreyfingFyrirAlla