4. júní 2026
Eyfahlaupið 2026 fór fram við frábærar aðstæður og sló öll fyrri met. Um 230 þátttakendur tóku þátt í hlaupinu í ár, sem er aukning um nærri 100 þátttakendur frá fyrra ári. Veðrið lék við hlaupara og áhorfendur og skapaði einstaka umgjörð um viðburðinn.
Í ár markaði hlaupið einnig tímamót þar sem þetta var í fyrsta sinn sem Eyfahlaupið var haldið sem löglegt og vottað götuhlaup, sem er stór áfangi í þróun viðburðarins.
Boðið var upp á 10 km hlaup, 5 km hlaup og skemmtiskokk fyrir yngstu þátttakendurna. Hlaupið fór afar vel fram og það var sannarlega ánægjulegt að sjá gleðina, samveruna og brosin í hverju skrefi. Fjölmargir áhorfendur mættu á hlaupaleiðina og hvöttu þátttakendur áfram frá upphafi til enda.
Heildarúrslit
🥇 Alexander Nói Ásgeirsson – 44:16
🥈 Hringur Baldvinsson – 48:00
🥉 Hlynur Kári Steinarsson – 52:41
Karlar 12–16 ára
🥇 Alexander Nói Ásgeirsson – 44:16
🥈 Michael Thor – 54:34
Konur 17 ára og eldri
🥇 Anne Isabelle Tardent – 56:17
🥈 Vilborg Líf Eyjólfsdóttir – 57:31
Karlar 17 ára og eldri
🥇 Hringur Baldvinsson – 48:00
🥈 Hlynur Kári Steinarsson – 52:41
🥉 Vignir Víkingsson – 55:08
Heildarúrslit
🥇 Þórarinn Ágúst Brynjarsson – 22:06
🥈 Óskar Elí Ísaksson – 24:28
🥉 Haukur Leó Ásgeirsson – 25:18
Konur 11 ára og yngri
🥇 Una Hervör Oddsdóttir – 35:27
Karlar 11 ára og yngri
🥇 Haukur Leó Ásgeirsson – 25:18
🥈 Hafsteinn Finnbogi Kristjánsson – 27:09
Konur 12–16 ára
🥇 Fanndís Fría Pálsdóttir – 27:59
🥈 Dalrós Ása Erla Eyjólfsdóttir – 31:51
Karlar 12–16 ára
🥇 Þórarinn Ágúst Brynjarsson – 22:06
🥈 Óskar Elí Ísaksson – 24:28
🥉 Daníel Már Ólafsson – 25:26
Konur 17 ára og eldri
🥇 Hekla Ósp Ólafsdóttir – 27:13
🥈 Elín Eyjólfsdóttir – 29:33
🥉 María Óskarsdóttir – 34:32
Karlar 17 ára og eldri
🥇 Oddur Þór Rúnarsson – 35:28
📣 Enn er hægt að panta Eyfahlaupsbolinn 2026!
Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir frá þeim sem misstu af bolapöntuninni fyrir hlaupið. Ef þú hefur áhuga á að eignast glæsilegan Eyfahlaupsbol 2026 er enn hægt að senda inn pöntun.
📧 Pantanir berist á hhf.formadur@gmail.com
Ekki missa af tækifærinu til að eignast minningu frá metárinu í Eyfahlaupinu!
Munið svo að panta tímalega fyrir næsta hlaup að árin liðnu - nýr litur á hverju ári.
HHF vill færa öllum þátttakendum, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum, starfsmönnum og áhorfendum innilegar þakkir fyrir daginn. Án ykkar væri ekki hægt að halda viðburð sem þennan.
Með metþátttöku, glæsilegum árangri og frábærri stemningu er ljóst að Eyfahlaupið heldur áfram að vaxa og festa sig í sessi sem einn af stærstu og skemmtilegustu íþróttaviðburðum Vesturbyggðar.
🏃♀️🏃♂️💙 Takk fyrir frábært Eyfahlaup 2026 – við sjáumst á næsta ári! 💙🏃♂️🏃♀️
Eyfahlaupið er haldið í minningu Sveins Eyjólfs Tryggvasonar frá Lambavatni, eða Eyfa eins og hann var jafnan kallaður. Hlaupið er í anda þeirra gilda sem einkenndu Eyfa alla tíð; gleði, samveru, jákvæðni og þátttöku fyrir alla. Markmiðið er að skapa viðburð þar sem allir geta fundið sér stað, hvort sem þeir vilja keppa við sjálfa sig og aðra eða einfaldlega njóta hreyfingar, útiveru og góðrar samveru.
Eyfi var þekktur fyrir brosmildi, hjálpsemi og óþrjótandi jákvæðni og viljum við að þau gildi endurspeglist í hverju skrefi þátttakenda. Hann var einnig hlaupari af guðs náð. Hvort sem það var á hlaupabrautinni á Völuvelli, á vegum og slóðum Rauðasands eða í daglegum störfum, þá mátti gjarnan sjá hann taka sprettinn
Til gamans má geta að Eyfi á enn héraðsmet í bæði hálfu maraþoni og maraþoni í flokki 17 ára og eldri, afrek sem vitna um hæfileika hans og ástríðu fyrir hlaupum. Það er því vel við hæfi að Eyfahlaupið beri nafn hans og heiðri minningu manns sem skildi eftir sig djúp spor í samfélaginu og í hjörtum þeirra sem þekktu hann.