29.-30. maí 2026
Dagana 29.–30. maí var sannkölluð borðtennisveisla í Íþróttamiðstöðinni Brattahlíð á Patreksfirði þegar æfingabúðir og fyrsta Vestfjarðamótið í borðtennis fóru fram. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Borðtennissamband Íslands og vakti mikla ánægju meðal þátttakenda.
HHF átti þar fjölmennan og öflugan hóp keppenda sem sýndi bæði miklar framfarir og frábæran keppnisanda. Fyrir marga var þetta fyrsta mótið þeirra en aðrir höfðu þegar öðlast smá reynslu. Sameiginlegt var þó að allir lögðu sig fram, studdu hvert annað og nutu þess að taka þátt.
Daginn fyrir mótið voru haldnar æfingabúðir þar sem þátttakendur fengu leiðsögn frá reyndum þjálfurum og tækifæri til að æfa sig með iðkendum á mismunandi getustigum. Æfingabúðirnar voru mikilvægur þáttur í undirbúningi mótsins og sköpuðu góða stemningu fyrir keppnina.
Árangur iðkenda HHF á mótinu var afar glæsilegur. Í opnum flokki kvenna hafnaði Birna Friðbjört Stephensen Hannesdóttir í 2. sæti. Í opnum flokki/U18 karla sigraði Pawel Dobosz, Frosti Þór Ásgeirsson varð í 2. sæti og Ásgeir Sveinsson í 3. sæti. Í U14 flokki sigraði Sæmundur Óli Davíðsson, Alexander Nói Ásgeirsson varð í 2. sæti og þeir Óskar Elí Ísaksson og Sigurður Sean Gunnarsson deildu 3.-4. sæti. Í U11 flokki sigraði Elías Ýmir Davíðsson, Sigurður Carlos Liljuson Da Silva varð í 2. sæti og þeir Arnar Atli Haraldsson og Haukur Leó Ásgeirsson deildu 3.-4. sæti.
Undanfarin misseri hefur borðtennisstarf á Vestfjörðum vaxið jafnt og þétt og þátttaka HHF í Vestfjarðamótinu sýnir vel þann áhuga sem hefur myndast hjá börnum og ungmennum á svæðinu. Uppbyggingin er afrakstur góðs samstarfs milli félaga, sjálfboðaliða, foreldra og Borðtennissambands Íslands sem hefur lagt ríka áherslu á að styðja við útbreiðslu íþróttarinnar á landsbyggðinni.
HHF vill þakka öllum keppendum, foreldrum, sjálfboðaliðum og samstarfsaðilum fyrir frábæra helgi. Það er greinilegt að framtíð borðtennis á Vestfjörðum er björt og við hlökkum til að fylgjast áfram með framförum iðkenda okkar á komandi misserum.
🏓 Áfram HHF!