Unglingalandsmót UMFÍ fór fram um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki þar sem keppendur Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF) létu svo sannarlega að sér kveða með glæsilegum árangri.
Alls tóku 19 keppendur frá HHF þátt og kepptu í fjölmörgum greinum, meðal annars frjálsum íþróttum, fótbolta, handbolta, körfubolta, blaki, hreysti og kökuskreytingum.
Í frjálsum íþróttum var árangurinn sérstaklega glæsilegur. Keppendur HHF unnu til 19 verðlauna, þar af 10 gullverðlauna, auk þess sem fjölmargir náðu sæti meðal tíu efstu í sínum greinum.
Victoria Rós vann gull í boðhlaupi með sinni sveit og varð í 7. sæti í kúlu og kringlu
Frosti Þór varð Unglingalandsmótsmeistari í hástökki með glæsilegu stökki yfir 1,74 m, sem tryggði honum jafnframt sæti í unglingalandsliði FRÍ. Hann bætti einnig við bronsverðlaunum í kringlukasti og varð í 5. sæti í kúluvarpi.
Alexander Nói vann til gullverðlauna í boðhlaupi og bronsverðlauna í 800 metra hlaupi auk þess að vera í 7. sæti í hástökki og kringlu.
Daníel Már varð tvöfaldur Unglingalandsmótsmeistari í kúluvarpi og kringlukasti ásamt 3. sæti í spjóti auk þess sem hann vann til gullverðlauna í boðhlaupi.
Elma Lind í 5. sæti í kringlukasti
Óskar Elí átti stórkostlegt mót og vann til fjögurra gullverðlauna í spjótkasti, kringlukasti, kúluvarpi og boðhlaupi. Hann bætti einnig við bronsverðlaunum í hástökki og varð í 5. sæti í 100m.
Sæmundur Óli varð í 2. sæti í hástökki og 3. sæti í langstökki auk þess náði hann 6. sæti í 100m og kúluvarpi.
Fanndís Fía nældi sér í 8. sæti í langstökki
Sigurður Sean og Michael Thor unnu til bronsverðlauna í boðhlaupi með félögum sínum úr UMSS. Sigurður náði einnig 5. sæti í spjótkasti og Michael nældi sér 4. sæti í 600m og 5. sæti í langstökki og hástökki.
Ívar Enok náði 4. sæti í hástökki og 8. sæti í langstökki.
Inga Sól varð í 5. sæti í spjótkasti
Elías Ýmir varð Unglingalandsmótsmeistari í kúluvarpi og í 8. sæti í spjótkasti.
Aría Matthea nældi sér í 9. sætið í kúluvarpi.
Unglingalandsmót UMFÍ er einstakur vettvangur þar sem keppni, gleði og vinátta fara hönd í hönd. Auk þess að ná frábærum árangri fengu keppendur HHF tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar, kynnast nýju fólki og njóta samverunnar. Það var greinilegt að allir skemmtu sér konunglega og sköpuðu minningar sem lifa lengi.
Aðstaðan á Sauðárkróki var til fyrirmyndar og skipulag mótsins afar vel heppnað. Héraðssambandið Hrafna-Flóki vill færa mótshöldurum og þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg innilegar þakkir. Án þeirra óeigingjarna framlags væri ekki hægt að halda viðburð af þessari stærðargráðu.
Við óskum öllum keppendum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þökkum þeim fyrir að vera frábærir fulltrúar Héraðssambandsins Hrafna-Flóka.