Meistaramót Íslands 15–22 ára fór fram á Þórsvelli á Akureyri dagana 19.–21. júní. HHF átti einn keppanda á mótinu, Frosta Þór, sem keppti í sex greinum og náði frábærum árangri.
Hápunkturinn var sleggjukastið, þar sem Frosti var að keppa og kasta í fyrsta sinn. Hann kastaði 25,05 m, varð Íslandsmeistari og setti jafnframt nýtt héraðsmet HHF.
🥇 Sleggjukast – 25,05 m, Íslandsmeistari og héraðsmet
🥈 Hástökk – 1,62 m
🥉 Kringlukast – 28,51 m
🥉 Spjótkast – 34,42 m
👏 Kúluvarp – 10,76 m, 4. sæti
Glæsilegur árangur hjá Frosta sem snýr heim með fjögur verðlaun úr sex greinum. HHF óskar honum innilega til hamingju!
Meistaramót Íslands 11–14 ára fór fram í Borgarnesi dagana 15.–16. ágúst. Sex keppendur frá HHF tóku þátt að þessu sinni. Nokkur forföll voru í hópnum, en við mætum bara enn sterkari og fleiri næst!
Árangurinn var frábær á glæsilegum velli Borgnesinga og veðrið lék við keppendur.
🥇 Daníel Már Ólafsson, 14 ára, varði Íslandsmeistaratitil sinn í kúluvarpi. Hann vann einnig silfur í kringlukasti og spjótkasti, þar sem hann setti nýtt héraðsmet, 34,88 m. Daníel setti einnig héraðsmet í 300 m hlaupi, 47,05 sek., og náði þar bronsi.
🥈 Alexander Nói Ásgeirsson, 14 ára, átti stórfínt mót og vann silfur bæði í 800 m og 2000 m hlaupi auk þess að taka þátt í fleiri greinum með góðum árangri.
🥈 Óskar Elí Ísaksson, 13 ára, vann fern silfurverðlaun, í spjótkasti, kúluvarpi, langstökki og kringlukasti, auk bronsverðlauna í hástökki. Í spjótkasti setti hann nýtt héraðsmet, 38,28 m, og bætti tæplega 20 ára gamalt met um tæpa tvo metra. Hann setti einnig héraðsmet í 300 m hlaupi, 49,67 sek.
👏 Michael Thor Sæmundsson og Sigurður Sean Gunnarsson, 12 ára, kepptu í fjölþraut og stóðu sig vel í öllum sex greinunum. Michael náði best 7. sæti í spjótkasti og kúluvarpi og Sigurður 8. sæti í kúluvarpi.
👏 Inga Sól Ólafsdóttir, 12 ára, keppti einnig í fjölþraut og varð best í 8. sæti í spjótkasti og kúluvarpi. Hún heldur áfram að sýna flottar framfarir milli móta.
Frábært mót hjá unga frjálsíþróttafólkinu okkar – Íslandsmeistaratitill, fjölmörg verðlaun og þrjú ný héraðsmet! 💙👏
HHF óskar öllum keppendum innilega til hamingju með árangurinn!